|
Uppfinningar
24. apríl 2009
Skilaboð frá Maitreya - miðlað af Margaret McElroy
Í upphafi fannst miðlinum mínum það fyndið að ég skildi vilja vera með blogg. Hún gerði sér ekki grein fyrir því að við í okkar heimi erum langt á undan ykkur í þekkingu á tækniveröld ykkar. Bjuggum við ekki internetið til á vissan hátt? Að sjálfsögðu var það manneskja sem skapaði það - eða það héldu þeir - en við komum hugmyndinni fyrir í höfði hennar. Þannig er það með allar uppfinningar og sköpun. Margt listrænt fólk heldur að þetta sé þeirra sköpun, en oftast erum það við sem komum þessu inn í vitund þeirra á meðan þau eru í draumaheimi.
Við höfum margar sálir í okkar heimi sem voru afar hæfileikaríkar í ykkar heimi áður en þær fóru yfir. Oftast nær fara þær aldrei aftur til ykkar heims þar sem þær hafa lokið áætlun sinni. Við höfum rannsóknastofur og vinnuhópa þar sem þetta fólk - verkfræðingar, vísindamenn o.s.frv - skapa með blessun almættisins, nýjar uppfinningar sem þið, á jörðinni haldið að séu "nýjar" en koma í rauninni frá okkur. Margar sálir sem komu fram með uppfinningar höfðu miðlaðar upplýsingar á meðan þær voru á jörðinni, en þær vildu ekki nota upplýsingarnar, annað hvort vegna ótta, efa, vantrúar á eigin sköpunarhæfni, eða af öðrum ástæðum. Nicola Tesla var þannig. Einnig Leonardo da Vinci. Hann var langt á undan sinni samtíð, en við endurkomu hans í okkar heima, endurskoðaði hann þær áætlanir sem honum höfðu verið gefnar, uppfærði þær og endursendi þær síðan til þeirra sem gætu látið þær verða að veruleika.
„Ég er oft spurður, „En meistari, ef allt er búið til í ykkar heimi, hvað þá um klámefni og þess háttar?“ Ég svara því til, jafnvel það var búið til af okkur, vegna þess að ef það væri ekki til þá myndu margir menn nauðga og smána konur. Það gefur mörgum mönnum útrás sem annars myndu fara út og ráðast á konur. Sál þarf á þess konar afþreyingu að halda þangað til hún hefur hækkað tíðnina sína. Þegar tíðnin hefur hækkað hefur hún auðvitað ekki lengur þörf fyrir þess konar örvun.
Þið eruð svo þröngsýn á okkur í okkar veröld. Það er sú sýn sem kristnir hafa skapað, en þetta er röng sýn. Kennslan okkar er mjög einföld: takist á við ykkar eigin örlög, ekki valda öðrum skaða eða setja út á aðra, verið ykkar eigin meistarar og takist á við lífslexíur ykkar og karma, eins og þið kallið það. Ég hef sagt það mörgum sinnum að hver maður hefur sinn sannleika og það sem er rétt fyrir einum er annars heimska! Margt kristið fólk hefur verið staðið að því að vera í sambandi við vændiskonur og að horfa á klámfengið efni. Margt andlega sinnað fólk hefur líka verið knúið áfram af kynlífsþörf sinni. Það er samt eðlilegur partur af lífinu, margir óttast það og misskilja. Það er þess vegna sem ég bað miðilinn minn og manninn hennar að búa til Kynlíf og Æðri vitund DVD.
Löngun okkar er að fræða eins oft og við getum. Eigi að síður, þegar jörðin getur hækkað í tíðni og þróast, mun mannfólkið ekki þurfa hluti eins og klám og vændi. Auk vísinda - og uppfinningamanna í okkar heimi, þá eru líka listamenn þarna, skemmtikraftar og margir aðrir sem vinna með hinni guðlegu veru (sem margir þekkja sem Guð) sem senda reglulega skapandi hugsun sína (skapaðar af þeirri veru) til jarðarinnar. Allt sem þið gerið, búið til, skynjið, kemur frá okkur, í okkar heimi. Hin frábæru málverk sem þið sjáið í ykkar heimi byrjuðu tilvist sína með okkur og voru síðan búin til af listamönnum á jörðinni. Sumir vísindamenn, listamenn og höfundar hafa enga hugmynd um að þeir eru miðlar og halda að þetta sé þeirra eigin sköpunarverk. Þeir fá mikið áfall þegar þeir koma aftur heim og átta sig á að þetta var ekki þeirra verk heldur var þetta okkar í upphafi, sem var sent til þeirra!
Við höfum tækni í okkar heimi sem þið hafið ekki einu sinni hugsað út í vegna þess að mannkynið er svo langt á eftir okkar heimi, rafmagns-og tæknilegar uppfinningar sem munu hjálpa mannkyninu svo mikið, en eins og er og í framtíðinni er ekki hægt að nota þær. Þannig var það með tölvuna sem aðstoðar þá sem eru lamaðir við að hafa samskipti sem voru ekki möguleg áður eða þurfti að nota augun til þess að blikka stafi.
Við höfum jafnvel meira í vændum fyrir ykkur í framtíðinni. Ef þið lúrið á uppfinningu og hafið ekki komið henni á framfæri, endilega gerið það. Við unnum hörðum höndum við að senda þær upplýsingar til ykkar. Það er bara ótti ykkar og efi sem stöðva ykkur. Nicola Tesla fann fullkominn miðill sem hann gat unnið í gegnum og höfðu alla tæknilega þekkingu til þess að aðstoða hann, en ekkert kom út úr því. Verkstæði var stofnað og tæki keypt, en manneskjan á jörðinni treysti sér ekki til þess að vinna með Tesla. Þvílík skömm - hann hafði svo mikið fram að færa til jarðarinnar til að aðstoða hana í framþróuninni.
Það er svo sorglegt og átakanlegt fyrir okkur þegar þið neitið að gera það sem þið hafið lofað að gera áður en þið fæddust. Við munum þó halda áfram að gera það sem við höfum gert vegna þess að það eru þeir sem þróast áfram og skapa - á mismunandi hátt. Á meðan þeir gera það, munum við halda áfram að senda uppfinningar okkar og hugmyndir til ykkar. Við höfum margt til þess að deila með ykkur í framtíðinni.
Maitreya.
Efst á síðu
Kennsla Maitreya
Heim
Beint á síðu http://maitreya.co
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|