|
Endurkoma
Skilaboð frá Maitreya- miðlað af Margaret McElroy
6. febrúar 2006
Margar sálir hafa sagt við mig, „Meistari ég hef átt þrjá eiginmenn. Með hverjum þeirra mun ég vera með í andlega heiminum þegar ég fer yfir?” Þetta er mjög mikilvæg spurning sem gæti hrætt margar sálir, sem halda að þær snúi heim til sama maka og þær hafa deilt lífinu með í þessari endurfæðingu.
Fáum jarðar dögum áður en ég skrifaði þetta bréf, kom Coretta Scott King heim á andlega sviðið eftir 78 ár á jörðinni. Hún var eiginkona Martins Luther King, sem kom heim til okkar eftir endurfæðingu sem endaði í apríl 1968 að jarðartíma. Þegar konan hans dó sögðu margir að hún hafi snúið til himna til að vera með manninum sínum. Eigi að síður, vissu þau ekki, að eftir að Martin Luther King kom heim til okkar kaus hann að snúa strax aftur til jarðarinnar til að ljúka því sem hann hefði átti að ljúka í síðasta lífi, aftur sem svartur maður. Hann er núna 36 ára gamall, karlmaður og býr enn í Bandaríkjunum. Hann hitti aldrei konuna sína frá síðasta lífi. Hún mun ekki vera með honum núna þó að hún hafi snúið heim. Hún, eins og hann, er sál sem kom til jarðarinnar til að læra lexíur.
Það skiptir EKKI máli hverjum þú ert með heldur lexíurnar sem þú þarft að læra. Já, þú getur verið með sama makanum allt þitt líf, en þegar þú snýrð heim, þá snýrðu heim alein(n). Öll ykkar sambönd, eiginmenn, jafnvel óvinir eru ekki lengur í þínum heimi. Þau eru bara sálir sem gera ykkur kleift að læra það sem er nauðsynlegt í ykkar lífi, ekkert annað!
Í lífinu sínu var Martin Luther King maður sem var hundeltur af yfirvöldum og rannsakaður út yfir það sem eðlilegt var. Í núverandi lífi er þessi maður hræddur við stjórnmála yfirvöld, hann er hræddur við tjáskipti og jafnvel við síma af því að sálin hans man svo vel ofsóknirnar. Hann hefur snúið til jarðarinnar aftur til að vinna andlega vinnu, einu sinni enn, en óttinn sem hann hefur núna er slíkur að hann lætur lítið fyrir sér fara. Það er vonast til að hann muni á endanum yfirstíga óttann og halda áfram í sinni andlegu vinnu. Hann hefur ekki gifst ennþá í þessari endurfæðingu.
Jafnvel þegar þú snýrð heim, gæti verið að þú værir ekki í sömu vídd og vinur þinn, félagi eða eiginmaður/eiginkona. Ef þú hefur hækkað tíðni þína meira en þeir sem eru þér kærir, munt þú fara þangað sem þeir geta ekki farið, í hærri vídd. Margar sálir óttast að geta ekki verið með mökum sínum í okkar heimi þegar þau snúa heim. Þau gera sér ekki grein fyrir að því meira sem þau óttast það, því meira munu þau draga aðstæðurnar inn í líf sitt svo að þegar þau snúa heim, hefur hugsun þeirra á jörðinni skapað jafnvel verra ástand í okkar heimi.
Láttu vera þá þörf að eiga maka, því það er það sem þú gerir þegar þú óttast aðskilnað í andlega heiminum. Af hverju ert þú með þennan ótta? Ert þú hrædd/ur að vera alein/n? Hver er orsök óttans? Í okkar heimi getur þú átt yndislegan tíma með þeim sem þú hefur elskað. Þú getur verið viss um að þú munt hitta aftur í okkar heimi þá sem þú hefur elskað og misst, jafnvel þeir sem hafa verið óvinir þínir munu verða vinir þínir aftur.
Hvað um Coretta Scott King? Mun hún snúa aftur til jarðarinnar og hitta manninn sem var einu sinni eiginmaður hennar? Nei hún hefur lokið jarðlífum sínum og hún mun nú dvelja í okkar heimi. Þegar maðurinn sem var fyrrum eiginmaður hennar snýr aftur mun hún gleðjast og þau munu kannski fagna því, en hún mun ekki vera með honum til eilífðar. Þetta er leið andlega heimsins, engin á annan og allir eru frjálsir að gera það sem þeir vilja. Æðra sjálfið í öllum sálum veit þetta og skilur.
Maitreya.
Kennsla Maitreya
Efst á síðu
Heim
Beint á síðu http://www.maitreya-edu.org
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|