Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Tíma blekkingin

 

 

5. nóvember 2002


Skilaboð frá Maitreya -miðlað af Margaret McElory



Þið hafið svo miklar áhyggjur og kvíða sem tengjast tíma! Tíminn virðist stjórna lífi ykkar, en ef þið lifið í NÚINU, þá mun allt gerast eins og það á að gerast.  Það táknar ekki að þið hættið að mæla ykkur til móts við fólk. Hættið samt að hugsa um tímann og ekki láta hann trufla ykkur.  Gefið hugsuninni um hann enga orku. Gerið bara eitt í einu frá augnabliki til augnabliks. Ef þið ljúkið ekki verkefnum ykkar, geymið þau þá til næsta dags. Með því að gera þetta þá verðið þið meistarar tímans,  en hann ekki meistari ykkar.

Með því að vera í núinu, þá eruð þið í augnablikinu. Fortíðin er liðin og þið getið ekki breytt henni. Það sama á við um framtíðina. Hún er óráðin, hún bíður þess að þið upphugsið hana og skapið.

Að hafa áhyggjur af tímanum mun aðeins svipta ykkur þessari framsetningu og sköpun.  Setjið fram áætlanir ykkar, segið alheiminum hvers þið þarfnist, hafið tiltrúna án neikvæðra viðhorfa um að það muni gerast og LEYFIÐ ÞVÍ SÍÐAN AÐ GERAST.  Ekki óttast, ekki efast, eða draga það í efa.  Leyfið bara alheiminum að sjá um það fyrir ykkur.  Þið erfiðið svo mikið til þess að reyna að láta hlutina gerast, en alheimurinn getur ekki séð um það fyrir ykkur vegna þess. Sleppið bara og leyfið alheiminum að hafa upp á því fyrir ykkur, ekki leita að því, ekki óttast að ykkur vanti það. Þegar þið gerið þetta þá verðið þið meistarar eigin örlaga.

Tíminn er í raun sú keðja sem þið takmarkið ykkur og heftið með.



Maitreya.

Kennsla Maitreya

Efst á síðu

Heim

 

 

 

Beint á síðu http://www.maitreya-edu.org

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur