Aðeins 6 sálir af hverjum þúsund sem fara inn á andlegu brautina ná í gegn
26. maí 2001
Skilaboð frá Maitreya miðlað af Margaret McElroy
Allar sálir velja á hvaða tímaskeiði þær ætla að vinna að andlegum þroska sínum og hækkun í tíðni. Sumir hefja þetta ferli í barnæsku eða á unglingsárunum. Aðrir velja þrítugs - eða fertugs aldurinn. Sumar sálir kjósa að hefja ferlið á efri árum og margar sálir byrja að upplifa það á áttræðis - eða níræðis aldri. Það er enginn sérstakur tími. Sálin segir oft áður en hún fæðist, "ég ætla að gera tilraun til þess að byrja leiðina mína á eigin spítur, en ef tilsettur tími sem ég hef úthlutað mér stenst ekki þá verðið þið fá mig til þess að gera breytingar. Ykkur gefst tækifæri til að gera það sjálf en svo aðstoðum við ykkur við að gera breytingarnar.
Það eru margir sem halda að andlegur þroski sé sérstaklega yndisleg og þægileg leið. Það er fjarri sannleikanum. Þegar þið opnið dyrnar að andlegri vinnu, þá þurfið þið fyrst og fremst að finnast sem þið verðskuldið það. Við getum ekki unnið með ykkur ef þið eruð uppfull af sjálfinu, hlustið ekki á innsæið og eruð uppfull af ótta. Á ákveðnu tímabili vinnum við að því að setja fyrir framan ykkur allt sem þið óttist. Við aðstoðum ykkur inn í ferli þar sem þið getið upplifað karmískar aðstæður. Aðstæður eru líka skapaðar til þess að sjá hvernig innsæið ykkar er og hversu mikla athygli þið gefið því.
Það sem gerist oftast er að þegar þið byrjið að hleypa inn hærri andlegri orku inn í líkamann, þá aðstoðar þessi orka ykkur í þróunarferlinu, hún mun síðan neyða allt sem þið hafið grafið djúpt í eter líkamanum upp á yfirborðið, hvort sem það eru verkir, tilfinningar, ótti, efi, óöryggi eða eitthvað annað. Þið fáið enga viðvörun. Það eru margar sálir á jörðinni að upplifa þetta vegna þess að það eru svo margar sálir sem eru að hefja sína andlegu göngu. Miklu fleiri en nokkurn tíman áður.
Það eru aðeins 6 sálir af hverjum þúsund sem fara inn á andlegu brautina sem ná í gegn. Sjálfið mun setja hindrun eftir hindrun í veginn til þess að stoppa ykkur. Það mun ekki gefast auðveldlega upp. Þetta er í raun bardagi á milli lægra sjálfsins og æðra sjálfsins. Oft er það lægra sjálfið sem sigrar vegna þess að sálin veit yfirleitt ekki hvernig á að takast á við lægra sjálfið.
Þið eruð prófuð í mörg ár, reynd, og þið sjáið um það sjálf. Þið hafið stillt upp áætlun og þið leikið samkvæmt þeirri áætlun ásamt leiðbeinanda ykkar, þeir sem eru í kringum ykkur verða leikarar á sviði áætlana ykkar. Allir í ykkar lífi verða kennarar eða speglar, til þess að aðstoða ykkur við að læra lexíurnar og losna af jörðinni. Margir klára þó aldrei fyrsta hlutann. Baráttan verður of hörð. Þau geta oft ekki staðist baráttuna sem fylgir þessu.
Ef þú ert ein af þeim sálum sem nefndar eru hér að ofan sem á í erfiðleikum með andlegan þroska, þá máttu vita að við í andlega heiminum eru með þér öllum stundum. Við yfirgefum þig aldrei. Biddu um aðstoð okkar og hún mun verða veitt. Mundu að innsæi þitt og andlegur þroski verður meiri eftir því sem þú hækkar í tíðni. Þú mátt líka vita að við getum ekki unnið með þér fyrr en þú hefur losað út fyrri lífa leifar. Tilgangurinn með andlegum þroska er að koma þeim upp á yfirborðið.
Þú ert leikarinn, leikstjórinn, framleiðandinn og sá sem metur leikritið þitt. Við meistararnir og aðra sálir í andlega heiminum erum bara til þess að aðstoða þig þegar þess er þörf, þú hefur lagt þessa beiðni fram og við getum ekkert gert án þíns leyfis.
Að lokum nærðu friðsæld, auk þess að geta skapað allt sem þú þráir. Sannarlega himnaríki á jörðu. Það er þess virði að berjast ef þú getur séð í gegnum blekkinguna sem jörðin skapar.
Maitreya.
Kennsla Maitreya
Efst á síðu
Heim
Beint á síðu http://www.maitreya-edu.org
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |