![]() |
||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
|
Fótónuorkan og áhrif hennar á fólk
Fótónuorkan er að hafa mikil áhrif á fólk um þessar mundir. Margaret McElroy skrifaði á vefinn maitreya-edu.org og segir þar frá því á hvaða hátt fólk er að finna fyrir orkunni. Svimi: Svimi þegar maður sest upp í rúminu, snýr höfðinu eða leggst á koddann, þessu getur fylgt ógleði. Þetta er vegna þrýstings á heilaköngul og heiladingul. Margaret hefur fengið þær upplýsingar að þeir sem eru fæddir síðastliðin 20 ár séu ekki að upplifa þessi einkenni. Líkami þeirra sé nú þegar búin að fara í gegnum umskipti þessarar nýju orku. Tímaleysi: Ekki nægur tími til að gera það sem þarf að gera. Dagar, vikur og mánuðir líða ótrúlega hratt. Svefn vandamál: Fólk vaknar upp á ákveðnum tíma á nóttunni. Flestir tala um kl. 03:00 og eiga síðan í erfiðleikum með að sofna aftur. Fólk finnur fyrir þreytu yfir daginn og hefur stundum þörf fyrir að taka sér miðdegisblund án þess að hafa haft þörf fyrir það áður. Augn vandamál: Margir eiga í vanda vegna breytingar á sjóninni. Sjónin batnar annað hvort, eða versnar. Ógleði: Þetta er vandamál sem hrjáir marga, en sumir eru bara að kljást við þetta vandamál. Þetta kemur til vegna þrýstings á orkustöðvarnar og þá sérstaklega sólarplexus. Kona sem er 55 ára hefur talað um að henni líði eins og hún sé haldin morgunógleði. Þreyta: Margir sem skrifa Margareti tala um að þau séu í vanda vegna ofboðslegar þreytu nánast eins og þau séu haldin síþreytu. Alan og Margaret hafa átti í erfiðleikum með að halda einbeitingu allan daginn og eru þreytt þrátt fyrir góðan nætursvefn. Reiði: Margir eru líka að upplifa reiði sem þeir gera sér enga grein fyrir hvaðan kemur. Hún kemur upp vegna orku Fótónubeltisins, orkan þvingar út úr orkustöðvunum gamla reiði sem hefur ekki verið hreinsuð út í fyrri lífum. Margir eru undrandi á þeirri miklu reiði sem er innra með þeim. Þetta eru aðal einnkenni sem hefur verið talað um en þau eru eflaust fleiri. Margir hafa farið til lækna til þess að láta athuga sig en ekkert hefur komið fram í rannsóknum vegna þessa, enda eru þetta ekki veikindi heldur einkenni sem stafa af orku sem gengur tímabundið yfir jörðina og á meðan það varir eða allt til ársins 2012 þá verður þetta svona.
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|||||||||||||||||||||