Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

Þegar venus kemur í heimsókn


Mig langar aðeins að skrifa um Venusarendurkomu sem gerist þegar plánetan Venus kemur aftur á nákvæmlega sömu gráðu og mínútu og Venus var þegar við fæddumst. Hún er því dálítið eins og Venusarafmæli.

Venus er ekki bara um ást og rómantík, hún er svo miklu meira en það. Hún er líka um sambandið við okkur sjálf, sjálfsvirði, sjálfsást, sjálfsumhyggju og tilfinninguna fyrir því að vera nóg.

Þá er hún líka um gildi, hvað skiptir okkur máli núna. Það þarf ekki að vera það sama og skipti okkur máli fyrir mánuði síðan eða ári.

Venus er líka um peninga og efnisleg verðmæti, hvað okkur finnst skipta máli að fjárfesta í og hvað við teljum vera kominn tíma á að sleppa í þeim málum.

Þá er plánetan líka um það hvað veitir okkur ánægju í lífinu. Hvernig getum við leyft okkur að njóta lífsins betur án þess að vera alltaf að gera eitthvað af skyldurækni?
Flestir þekkja líka að Venus er um sköpun og list, heimili, tónlist og allt það fallega sem nærir okkur.

Það er líka um aðdráttarafl, ekki bara hvað laðast að okkur heldur hvað erum við sjálf farin að laðast að.

Þannig að þessar spurningar gætu komið upp á Venusarendurkomu. Hvað elska ég? Hvað kann ég að meta? Hvað vil ég hafa meira af í lífi mínu? Hvað finnst mér ég eiga skilið að taka á móti?

Og síðast en ekki síst, hvers virði er ég í mínum eigin augum og hvað vel ég fyrir mig út frá því?

Þannig að það gæti verið að þeir sem eru að fá Venusarendurkomu í stjörnukortinu sínu gætu verið að upplifa hana mjög ólíkt, allt eftir því hvað verkefni eru á döfinni hverju sinni.

Þessa dagana er þessi afstaða alveg að bresta á hjá mér, þannig að áhrifa hennar eru virkilega farin að gæta. Ég held að Venus sé nákvæmlega í 8° í Sporðdreka 2. október eða um það bil. Hann er kominn í 6° núna, þannig að hann er kominn mjög nálægt fæðingar-venusnum mínum sem er í 8° í Sporðdreka í 9. húsi. Hvert hús í stjörnukortinu er 30° og hvert merki er 30°.

Venus í endurkomu er þannig búin að fara yfir t.d. Neptúnusinn minn í 4° í Sporðdreka í 9. húsi. Neptúnus snýr að næmni, ímyndunarafli, andlegri upplifun og takmarkaleysi. Þannig að þegar Venus fer yfir Neptúnus getur maður fengið sérstakan áhuga á fegurð, ást, tónlist, list, sköpun og að það sé eitthvað meira en það sem sést á yfirborðinu. (Skyndilegur áhugi minn að fara að prjóna á mig sokka eða peysu útskýrist sennilega á þessari afstöðu.) Elska að horfa á eitthvað listrænt, allt sem vekur mýkt og mildi.

Þegar Neptúnus og Venus í Sporðdreka í 9. húsi eru í samhljómi getur til dæmis komið löngun til þess að skilja ástina út frá sálar og andlegri merkingu hennar. Hvað gerist þegar manneskjur tengjast djúpt í ástarsamböndum og hvað vaknar innra með þeim við þá tengingu?

Mig hefur svo oft langað til að skilja hvernig ástin virkar á milli tveggja einstaklinga út frá dýpt sálarinnar. Hvað gerist þegar ástin vaknar? Hvað gerist þegar önnur manneskja vekur upp sálarkjarnann (óskilyrta ást) innra með okkur? Ástin vaknar upp hið innra og magnast við það að aðilarnir eru tveir. Þegar tveir koma saman og allt það.

En þegar hún er vakin upp á milli tveggja einstaklinga þá gerist eitthvað, það er eins og tvær sólir mætist. Þær stækki í eina risastóra sól. Tvær sólir sem verða skyndilega að einni og það verður eitthvert bliss og allt fer á yfirsnúning. Það verður allt alveg óskaplega gaman og skemmtilegt og auðvelt. Sólirnar tvær skína. Tvær ástfangnar sólir er það ekki einhver texti í lagi. Vá, bara við það að skrifa þetta verður bara svona vá, vá.
Við getum reyndar vakið þessa ást upp innra með okkur á margan hátt vegna þess að það er svo margt sem við getum vakið hana með en það eru seinni tíma pælingar.

Það verða víst nóg af pælingum um þetta, því að Venus í Sporðdreka í 9. húsi nær ekki alveg fæðingar venusnum mínum. Fæðingar venusinn er í 8° og 38 mínútum, þannig að hann mætir alveg á stéttina við hurðina 2.október, þar sem hann fer í 8° og 29 mínútur áður en hann snýr við 3. október.

Hann kemur síðan aftur að venusnum mínum í desember og þá verður nákvæm venusar endurkoma.

Ég upplifi þó alltaf að þó að afstaðan sé ekki alveg nákvæm upp á punkt og prik, þá finn ég að áhrifanna er farið að gæta löngu áður en nákvæmri afstöðu er náð.

 

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 


© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir hafa samband