Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 


Dætur hugans

Einu sinni fékk ég þá setningu bara svona upp úr þurru að „dætur hugans hefðu 18 tær“. Það er svo mitt að túlka hvað þetta þýðir.

Ég býst allavega við því að þetta snúi að þeim hugarorkumynstrum sem hafa orðið til hjá mér í gegnum þau líf sem ég hef átt hér á jörðinni.

Það að hafa mörg og sterk orkuleg mynstur sem spila ákveðna rullu í lífinu geri ég ráð fyrir að sé komið frá mörgum öðrum lífum.

Hugarmynstrin tengjast ákveðnum áföllum sem hafa orðið til í öðrum lífum, en á einhvern hátt berum við þessi hugarmynstur og tilfinningar tengdar þeim áfram inn í lífið sem við erum í, í dag.

Hvernig það gerist veit ég ekki, en sennilega byrjar að spilast inn á þau strax eða fljótlega eftir fæðingu, þar sem við förum inn í tilfinningaorkuspil fjölskyldunnar sem við fæðumst inn í eða þeirra sem við umgöngumst mest á þessu fyrsta skeiði ævinnar.

Eins og ég sé þetta, þá veljum við fjölskyldu áður en við fæðumst út frá þeirri orku, svo sem tilfinningum, hugformum (dætur hugans) og líka jákvæðum þáttum sem við ætlum að læra af, horfast í augu við og efla og styrkja í þessum fjölskyldusamböndum.

Hugarmynstrin sem við komum með inn í lífið falla þá væntanlega nokkurn veginn að þeim mynstrum sem við berum sjálf.

Seinna á lífsleiðinni sjáum við annaðhvort í gegnum þessi mynstur og stígum út úr þeim eða þá að við höldum áfram með þau af því að það hentar okkur.

Við eigum líka okkar eigin hugsanamynstur sem við komum með og stundum er eins og þessi hugarmynstur séu mjög sjálfstæð og stýri hugsun og tilfinningaviðbrögðum strax á unga aldri.

Ef við skoðum það sem Eckhart Tolle talar um sem sársaukalíkamann, þá eru þar margar tilfinningar og hugsanir sem tengjast hver annarri.

Ég hef skrifað um tilfinningar í mörg ár og stundum er eins og ég fari alltaf í ákveðinn hring. Þar sem ég kem aftur að sömu tilfinningunni, sömu hugsanir koma upp eða aðstæður sem minna á eitthvað sem ég hef áður upplifað.

En er það mögulegt að ég sé alltaf að fara sama hringinn? Eða er ég kannski að koma að sömu mynstrum (dætrum hugans), en frá nýju sjónarhorni og með nýjum upplifunum? Eins konar endurtekning á efni, ef maður gæti talað um kvikmynd sem fjallaði um ákveðið þema sem væri svo sett upp í aðra kvikmynd með pínu öðruvísi nálgun á sama efninu, sem vekti samt sömu tilfinningar og hugsanir, en þá út frá nýju sjónarhorni.

Ég held oft að núna muni ég ekki dragast eins mikið inn í hugsanir og tilfinningar, en það er eins og dætur hugans nái mér alltaf á einhvern hátt. Ef við getum miðað við kvikmyndina, þá eru þær alltaf að búa til nýja útgáfu sem ég gæti fallið fyrir og notið dramans í myndinni.

Það er allavega eins og hugurinn hafi margar leiðir til að ná athygli minni. Til dæmis þegar ég var að skrifa um sektarkenndina. Áður en ég skrifaði þann pistil var hugurinn búinn að framkalla alls konar myndskeið af gömlum atvikum sem höfðu gerst fyrir löngu og tengdust sektarkennd.

Ég skrifaði um sektarkenndina og við það var eins og ég næði að afvopna hugann í bili.

En hvað gerðist svo?

Næst fór hugurinn að sýna mér alls konar aðstæður sem tengdust því að vilja stjórna aðstæðum sem voru í brennidepli lífs míns þá stundina. Auðvitað veit ég að maður getur ekki stjórnað með huganum, því í raun hef ég enga stjórn á þessum aðstæðum.

Tærnar virðast allar hafa sínar eigin leiðir til að fá mig til að taka eftir sér.

Sektarkenndin kallar fram gamlar minningar. Stjórnunarþörfin grípur tækifærið þegar ákveðnar aðstæður koma upp og reynir að fá mig til að stjórna útkomunni. Vanmátturinn vekur tilfinninguna að ég verði að gera eitthvað, þótt ég geti það ekki.

Og dramað getur jafnvel skapað spennu sem fær mig til að vilja fylgjast áfram með einhverri atburðarás.

Dætur hugans reyna að ná athygli minni með sínum hætti, en ég er líka farin að taka eftir því hvernig þær leika með mig og draga mig út úr jafnvægi og vellíðan sem ég hef náð um stund. Hver er sú sem tekur eftir þeim? Er það kannski hin eiginlega ég?
Þetta er endalaus leikur, samspil hugarorku og tilfinninga, og það er athyglisvert að sjá hvernig maður samþykkir í raun og veru að dragast inn í spilið.

En líka gaman að sjá hvernig smám saman er hægt að horfa á þetta utan frá eins og ákveðið leikrit.

Hver þarf svo sem að fara í leikhúsið?


Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir hafa samband