Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Umburðarlyndi

 

23. júní 2009

Blekkingin er víða, þið haldið eitt, en raunveruleikinn er allt annar. Hvenær sjáið þið í gegnum blekkinguna? Það er ekki fyrr en þið hafið unnið mikið út af staðnaðri gamalli orku, fyrri lífa. Þið hafið svo mikið af gamalli orku frá fyrri lífum, sem er mjög erfitt að vita af fyrr en þið hafið hreinsað til í orkulíkömum ykkar. Þið gerið ykkur enga grein fyrir því hvað það er sem leynist í orkulíkömunum ykkar og orkustöðvum. Það er það sem hindrar ykkur í því að skína því skæra ljósi sem þið eruð.

Þegar þið hafið komist í gegnum ystu lögin, þá farið þið að verða meðvitaðri um fyrri líf. Þið hafið öll lifað áður og munið koma aftur og aftur, nema að þið lærið að losa út það sem hindrar sálarljósið í að skína.

Þið eruð ljósið, þið eruð viskan þið eruð ALLT, ef þið viljið. Valið er ykkar, þið veljið að nálgast ljósið, eða vera áfram í meðvitundarleysi. Dvelja í dagsbirtunni, eða hinu skínandi ljósi. Þið eruð allt, þegar og ef þið viljið. Þið getið skinið svo skært, verið lýsandi ljós fyrir sjálfa ykkur og aðra. Leyfið ykkur að dvelja í hinu eina sanna ljósi, ljósi kærleikans, umburðarlyndis og hreinleika.

Umburðarlyndi er stór þáttur í kærleikanum, að leyfa öllum að vera eins og þeir eru. Reyna ekki að stjórna eða stýra lífi annarra. Þið hafið ekki þekkingu til þess, þið hafið ekki upplýsingar um það hvernig aðstæður og líf annarra er. Þið hafið ekki gengið í fótsporum þeirra alla ævi eða allar ævirnar þeirra. Þið vitið ekki hvað liggur að baka gjörðum þeirra, þið getið ekki dæmt aðra út frá ykkar sjónarhorni. Þið vitið hvernig líf ykkar hefur verið, en ekki þeirra. Reynið að sleppa því að dæma, því með því að dæma þá eruð þið að dæma ykkur sjálf. Þið eruð líka dómhörð á ykkar eigin líf en reynið að sleppa því líka. Reynið að elska allar ykkar gjörðir þær góðu og þær slæmu eins og þið kallið það.

Leyfið ykkur að elska allt og alla eins og þeir eru. Ykkur langar til þess að aðrir elski ykkur eins og þið eruð og því ættuð þið að leyfa öðrum að vera eins og þeir eru og elska þá þannig. Hver og einn er í sinni heilmynd, hver og einn lifir sínu lífi á þann hátt sem honum/henni finnst vera rétt. Hvað vitið þið um hvað er rétt fyrir aðra, þið vitið það ekki. Þið eruð einstök hver með sína sálarvisku, hver með sitt farartæki (líkama), þið eruð elskuð hvert á sinn hátt.

Þið getið ekki öll verið eins, þá væruð þið ekki að læra hvert af öðru heldur yrði lífið frekar tómlegt og fábreytt. Þið eruð einstök og elskuð, leyfið því að vera þannig. Leyfið öðrum að vera eins og þeir eru án þess að dæma, án þess að vita betur hvað þau ættu að gera, eða ættu ekki að gera.

Hvað liggur að baki því að dæma? Það er eigið óöryggi, eigin óánægja ekkert annað. Þið þurfið ekki að stjórna öðrum og annarra lífi þið hafið nóg með ykkar líf. Leyfið öðrum að vera eins og þeir vilja. Þannig eruð þið frjáls, þið öðlist frelsi frá því að vera með orku annarra stöðugt inn í ykkar. Þið hafið þetta frelsi, þið hafið þetta val. Þið eruð heppin að geta valið, þið eruð lánsöm að þurfa ekki að stjórna öðrum. Þið hafið valið í ykkar eigin lífi, látið það verða til blessunar fyrir ykkur sjálf og aðra.

Þessi skilaboð fékk ég í júní 2009

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur