![]() |
||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Matur
19. júní 2009 Margir gera sér ekki grein fyrir því að maturinn hefur áhrif á heilsu fólks. Það sem þið borðið eða innbirgðið þarf líkami að vinna úr sem eldsneyti. Þið eruð oft eins og hálfgerðar ruslakistur þegar kemur að mat, þið spáið ekkert í það hvað þið látið ofan í ykkur. Þið mynduð aldrei setja bensín á bílinn ykkar sem væri blandað allskyns efnum. Líkami tekur endalaust við rusli og virðist þrífast á því, eða það haldið þið, þangað til gangverkið stoppar eða gefur sig á einhvern hátt og þá eruð þið undrandi á því að ekki skuli allt virka eins og venjulega. Þið ættuð að huga betur að mataræðinu, já, miklu betur, það eru svo mörg efni í unnum matvælum sem fara illa með gangverk líkamans. Hreinn matur er á hverju strái hér á landi og þið ættuð ekki að þurfa að borða upp úr ruslakistunum á götunum eða það sem liggur á götunni og margir eru búnir að traðka ofan á. Þið eigið fullt af góðum mat, ferskum mat, því minna unnin matvara því betra. Hráefnið sem hér fæst er undursamlega gott og þið eigið sjálf að elda matinn í ykkar heimahorni. Gefa honum ást og umhyggju áður en þið berið hann fram, fylla hann af kærleika og orku fyrir aðra fjölskyldumeðlimi. Þið þurfið að vera meðvituð um að holl næring er það sem gefur ykkur styrk og góða heilsu. Þið þurfið ekki að þjást vegna óhollrar fæðu, en þið eruð endalaust að láta eftir ykkur skyndibitafæði þar sem engin hollusta er í fyrirrúmi. Engin ástúð er lögð í matargerðina. Hugsið ykkur bara muninn á því að vinna að matargerðinni með ást til fjölskyldumeðlimanna í fyrirrúmi eða því að einhver og einhver sér um matargerðina í misjöfnu ástandi með orku sem hentar engan vegin ykkur sjálfum eða ykkar fjölskyldu. Hvað ef manneskjan sem eldar er í ójafnvægi, þá skilar sú orka sér í matargerðina, hafið það í huga þegar þið eldið næst. Orkan sem þið eruð að senda út við matargerðina fer til fjölskyldunnar og ofan í maga, nærir ykkur sjálf og fjölskyldu ykkar. Látið það vera ást sem nærir fjölskylduna, þið sem sjáið um matargerðina og þið viljið þeim allt hið besta. Ást er næring, næring sem gefur börnunum fyllingu fyrir nóttina lætur þeim líða betur í svefninum, þau fá betri svefn, vakna endurnærð, úthvíld. Þið hafið valið, þið hafið valið fyrir börnin ykkar, þau eru viðkvæm fyrir eiturefnum í matvælum, þau eru viðkvæm fyrir orkunni sem fylgir í eldamennskunni. Gefið ykkur tíma fyrir eldamennskuna það er mikilvægt. Hafið líka með ykkur nesti sem þið útbúið sjálf þegar þið ferðist. Reynið að forðast aukaefni, gervisykur og allt sem ekki er ferskt. Nýtt og ferskt það er málið athugið líka með krydd og annað sem þið setjið á hrávöruna ykkar. Fylgið öllu vel eftir frá því að þið kaupið inn og þar til það er komið á borðið. Það er svo margt sem þið getið gert til þess að ykkur líði betur bæði andlega og líkamlega. Það er mikilvægt ekki síst um þessar mundir þar sem mikil ólga er í þjóðfélaginu. Margt er að gerast og það er erfitt að halda jafnvæginu og þá sérstaklega fyrir þá sem yngri eru. Reynið að halda ró ykkar það er mikilvægt til þess að komast í gegnum þessa tíma, þessa tíma sem eru tímar breytinga. Þið eruð hugrökk og munið komast í gegnum þetta, það getur verið að ykkur finnist það erfitt en munið að breytingar kosta átök og innri baráttu. Þið eruð sterk þið munið koma sterk út úr þessu. Vinnið með orkunni ekki á móti, þá mun það ganga hraðar fyrir sig, miklu hraðar og þá mun það verða auðveldara eins og þið segið.
Ég fékk þessi skilaboð þennan dag og eru þau örugglega ekki síst ætluð mér sjálfri.
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||