Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

 

 

 

Haldið orkunni hreinni

 

18. júní 2009

Það að hlusta mikið á fréttir, lesa dagblöð eða tímarit með neikvæðum fréttum og sögum um annað fólk veldur því að orkan ykkar verður eins og skýjuð. Þið ættuð að forðast þannig efni eins og heitan grautinn eða eldinn því það dregur úr ykkur allan mátt. Af hverju viljið þið velta ykkur upp úr því hvernig aðrir haga lífi sínu. Hvað dregur ykkur að slúðri um annað fólk? Þið berið ykkur saman og verðið óánægð með útkomuna, hvers vegna? Jú ykkur finnst þið ekki vera eins góð og þau, ekki eins frábær og hvað gerist? Sjálfsmatið bíður hnekki og þið reynið að fylla það upp með einhverjum hætti, til dæmis með því að fara og versla eitthvað sem þið hafið í raun enga þörf fyrir.

Farið frekar út í náttúruna og njótið þess að finna ilminn af trjánum blómunum og finna hvernig allt er lifandi undir fótum ykkar. Finnið friðinn umhverfis ykkur, finnið ljósið í hverju blómi. Það er svo margt hægt að gera sem gleður ykkur sem byggir upp sjálfstraustið og styrkinn ykkar. Þið eruð meistarar eigin lífs og með því að stjórna aðgerðum ykkar þá eruð þið að stjórna ykkar eigin lífi. Af hverju að hanga heima yfir sjónvarpi þegar það er hægt að hafa alla heimsins fegurð fyrir augunum aðeins með því að fara út fyrir dyrnar á heimili sínu. Þið sjáið annað fólk í raunverulegum heimi ekki gerviheimi, heldur alvöru veröld iðandi af fólki og náttúru landsins. Þið eigið svo fallegt land svo mikið af fallegum gróðri og hreinum og tæru fjalllendi.

Farið í göngutúra og njótið útivistarinnar. Ef þið getið ekki gengið fá þá einhvern til þess að fara með ykkur út í hjólastól eða á öðru farartæki, eða finnið það farartæki sem hentar ykkur til þess að komast um. Finnið náttúruna umvefja ykkur og gefa ykkur kraft. Sjáið hvernig þið komið allt önnur til baka full af ljósi og krafti. Geislandi af útiverunni. Hreinsuð af orku annarra, hreinsuð af ykkar eigin þungu hugsunum og tilfinningum sem hafa þjakað ykkur jafnvel allan daginn. Hvað gerist ef þið hefðuð ekki gert þetta heldur sest niður og horft á sjónvarpið? Gerviveröldina sem þið sökkvið ykkur í til þess að þurfa ekki að horfast í augu við lífið. Það er flótti frá lífinu ykkar flótti frá því að þurfa að takast á við ykkar eigin veikleika eða styrkleika.

Hvað eruð þið að flýja, verið meðvituð um að þið eigið allt það besta skilið við elskum ykkur ótakmarkað endalaust og óendanlega. Þið eruð sálir sem við viljum gera allt til þess að hjálpa á lífsbrautinni ykkar, leiða ykkur áfram til meiri þroska. Þið eruð okkur óendalega dýrmæt, þið eruð svo elskuð af okkur. Ást okkar til ykkar á engin takmörk, engin endimörk. Þið eruð okkur mikilvæg og því er það sem við reynum að leiðbeina ykkur til betri vegar. Leiða ykkur inn í ljósið, inn í ljósið sem leiðir ykkur heim. Heim þar sem þið eigið heima að lokinni þessari jarðvist. Leyfið okkur að hjálpa ykkur að finna leiðina heim. Þá leið sem þið öll þráið innst inni. Sálin hefur vitneskjuna um það hvað hún vill gera í þessari jarðvist og hún reynir allt hvað hún getur til þess að halda ykkur við þá áætlun en margt fer öðruvísi en ætla er. Þið villist stundum af leiðinni en það er aldrei of seint að finna brautina á nýjan leik. Þið eruð frábærir nemendur, þið eruð yndisleg.

Þessi skilaboð fékk ég þennan dag.

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur