Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig



 

Að leika leiki sem valda skaða í lífi manns

 

 

Skilaboð frá Maitreya - miðlað af Margaret McElroy

30. janúar 2002, Maitreya

Það er mjög mikilvægt að vera meðvitaður um það sem sjálfið aðhefst í undirmeðvitundinni þegar maður er á andlegri leið. Hvernig það getur spilað með ykkur og þá sem eru í kringum ykkur. Það er hægt að valda svo miklum skaða með þessum leikjum. Þið getið spurt: "Meistari hvað áttu við með þessu?" nú ég skal segja ykkur það.  

Þið teljið að það sé allt í lagi hjá ykkur, eigi að síður getur verið mikil eyðilegging í gangi í undirvitundun hugans.  Ef maður er óöruggur með eitthvað þá getur maður farið í allskyns leiki sem hafa áhrif á þá sem eru í kringum mann. Að koma af stað afbrýðisemi, til þess að skapa reiði og gremju. Sjálfinu líkar ekki þegar það þarf að fara út úr þægindahringnum, þannig að það býr til allskyns aðstæður þar sem það veldur skaða og þegar tjónið hefur orðið þá skilur það sálina eftir sorgmædda yfir því sem hefur gerst.

Ég ætla að koma með dæmi um nemanda sem elskaði mann ákaflega mikið. Hún elskaði hann svo mikið að sjálfið hennar varð brjálað vegna þeirrar athygli sem hann gaf börnunum sínum. Sjálfið hennar vildi hafa hann allan fyrir sig og þótt hún reyndi að hafa samband við þau á friðsaman hátt, þá endaði með því að sjálfið hennar bjó til aðstæður sem maðurinn gat ekki lengur sætt sig við. Hann sagði henni að hann vildi ekki lengur vera með henni. Til að byrja með, fannst henni þetta vera allt í lagi, en svo áttaði hún sig á því að hún saknaði hans hræðilega mikið, þá fór æðra sjálf hennar að sýna henni hvað hún hafði gert. Hún varða algjörlega miður sín vegna þess. Hins vegar var tjónið orðið og hún var orðin ein eftir. Maðurinn hélt áfram, fann annan maka - varð hamingjusamur, en hún gat ekki haldið áfram, það eina sem hún hugsaði um var hvað hún hafði einu sinni átt og hvað hún hafði misst. Í þessu tilfelli var það sjálfið sem olli verulegum skaða.

Mannfólkið gerir þetta alltaf. Fólk hugsar ekki áður en það talar. Það skapar aðstæður sem geta valdið öðrum sársauka og þjáningu, allt í nafni þess að spila leiki. Spila leiki til þess að stríða öðrum, eða til þess að skapa tilfinninga brellur. Hvort heldur sem er, þá er það sjálfið sem gerir þetta vegna þess að æðra sjálfið myndi aldrei gera svona.

Allar manneskjur hafa tilfinninga líkama. Tilfinninga líkaminn er mjög viðkvæmt hljóðfæri og hann er í ójafnvægi hjá mörgum. Sjálfið notar þetta á svo margan hátt. Það eyðileggur og leikur leiki. Þegar þessu líkur og æðra sjálfið stígur inn  í algjörum heiðarleika og sannleika án þess að leika leiki, eða  vera með tilfinninga kúgun, þá fyrst er hægt að lifa lífinu í hinum æðsta tilgangi. Allt annað er blekking.

Hugsaðu áður en þú talar, hugsaðu um orð þín, hugsaðu um það hvernig orð þín geta komið öðrum í uppnám, já, manni er ætlað að hafa stjórn og fara ekki í uppnám, en þrátt fyrir það er maður berskjaldaður á jörðinni fyrir öllum tilfinningum mannfólksins. Þegar leikir eru spilaðir getur það jafnvel verið sársaukafullt fyrir þá sem hafa stjórn á tilfinninga líkama sínum. Ef þú bara vissir hversu oft orð þín rista djúpt og valda skaða, myndir þú hugsa þig tvisvar um það sem þú segir og hvernig þú segir það, því að stundum er það ekki ÞAÐ sem er sagt, heldur HVERNIG það er sagt.

Æðra sjálfið hefur aðeins æðsta tilgang og virðingu fyrir lífinu í huga. Vertu meðvituð/aður um þetta og hugsaðu fram í tímann áður en þú talar og særir aðra.

Maitreya

 

Efst á síðu

Kennsla Maitreya

Heim

 

 

 

Beint á síðu http://www.maitreya-edu.org

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur