|
Jean bloggar
22. febrúar 2010
Þó að ég hafi lesið skilaboð Maitreya um „Karma og lexíur" nokkrum sinnum, þá skil ég það bara vitsmunalega. Ég vissi ekki muninn á lexíu sem ég kýs að læra og því karma sem ég þarf að borga fyrr en ég upplifði það nýlega.
Ég setti fréttabréf Maitreya um „Karma og lexíur" hér svo að þið getið rifjað upp boðskap meistarans:
Fréttabréf #151,
Karma og lexíur, 5. júní 2005
Skilaboð frá Maitreya:
Nýlega spurði vefskoðandi um karma og spurði hvort ég gæti fjallað um það. Það er áhugavert. Allt er háð orsök og afleiðingu. Á ykkar andlegu leið hafið þið öll gert eitthvað sem þið eruð ekki ánægð með, sem hefur sært aðra. Ég hef marg sagt að, það eru engar tilviljanir, allt er eins og það á að vera. Eigi að síður getur komið fyrir að hlutirnir fara úrskeiðis eða orðið meiri en þeim var ætlað. Tökum sem dæmi föður miðilsins míns. Honum var ætlað að losa hana við egóið með aðgerðum sínum og hann gerði það, en hann gerði það aðeins of harkalega og olli sársauka og skaða sem var meiri en hann hefði átti að gera. Já, hann losaði hana við egóið og hann skaðaði hana á vissan hátt, af því að til viðbótar því að losa hana undan egóinu, þá átti hann að gefa ást, en gerði það ekki. Þetta olli henni margvíslegum vandamálum eftir að hún varð fullorðin.
Það eruð ÞIÐ sem ákveðið hvort þið hafið sært einhvern fram yfir það sem lexíunni var ætlað. Þið gerið það eftir að þið snúið til okkar heims, eftir að þið hafið verið í speglasalnum. ÞIÐ eruð þau sem merkið í Akashic skrárnar ykkar að þið þurfið að gera eitthvað til að endurgreiða fyrir þann verknað. Það getur runnið upp sá tími að þið verðið laus við karma í þessum heimi þegar allt ykkar karma hefur verið endurgreitt. Þá verðið þið ábyrg fyrir karma sem skilar sér strax til baka. Það er þegar athafnir ykkar skapa svörun sem kemur til baka þegar í stað, þar sem það er ekki fært yfir á annað líf, heldur kemur strax aftur til ykkar í þessu lífi. Þegar það gerist þá þarf maður að vera mjög meðvitaður um hugsanir og athafnir ef maður á að komast hjá þessu. Þetta gerist venjulega hjá þeim sem eru á andlegri leið og þeim sem eru að færast inn í hærri tíðni. Því þetta myndar ekki bara karma sem skilar sér strax, það kennir líka hvað hugsanir og verknaður getur gert. Sál á þessu stigi getur séð hvernig hugsanir og verknaður getur myndað karma af því að það kemur nánast strax til baka.
Framhald
23. febrúar 2010
Leyfðu mér að endurtaka að það er ÞÚ og ÞÚ EIN/N sem velur hvort aðgerðir þínar hafi farið út yfir það sem nauðsynlegt var til þess að endurgreiða karma. Önnur spurning sem ég var spurður um: „Hvað er karma og hvað er lexía?" Karma er þegar þú þarft að endurgreiða ákveðinni sál fyrir fyrri aðgerðir og þú hefur valið að gera það áður en þú fæðist á jörðinni. Þú tekur ákvörðunina um þetta og það gildir um ákveðin einstakling eða hóp. Lexía er eitthvað sérstakt sem þú vilt læra, svo sem þolinmæði, að losa þig við ótta, o.s.frv. Það er hægt að læra með hverjum sem er og yfirleitt halda sálir áfram að koma inn í líf þitt til þess að spegla þetta fyrir þig. Þegar þú hefur lært lexíuna, þá fer sálin út úr okrunni þinni og vandamálið er ekki lengur til staðar. Það er greinilegur munur á karma og lexíum. Það er ekki það sama.
Það er margt sem þarf ennþá að skrifa um þetta efni, en þetta er gott í bili. Maitreya.
Þegar þú lest skilaboð Maitreya hér, þú muntu vita muninn á karma og lexíum. Hins vegar veitti ég því ekki mikla athygli hvernig ég gæti skilið mismuninn á því fyrr en ég hafði upplifað það sjálf.
Ég hef valið að læra nokkrar erfiðar lexíur í þessu lífi vegna þess að ég vil klára allt sem hefur haldið mér á jörðinni þannig að ég þurfi ekki að koma aftur. Mig langar til þess að losa mig við allt mitt fyrri lífa drama og halda áfram sálarþroska mínum og sem andleg vera. Til þess að ná þessu markmiði, þarf ég til að hreinsa allt karmað sem ég hef gagnvart öðrum og læra lexíurnar sem ég hef valið að læra.
Framhald
Efst á síðu
Bréf Jean
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|