Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

Karma og endurfæðing



Jean Luo bloggar


16. febrúar 2010

Eins og ég sagði frá í fyrra bloggi mínu um úrvinnslu tilfinninga gagnvart föður mínum í þessu lífi. Ég náði loksins að klára það daginn fyrir fyrsta sólmyrkva þessa árs.  Þetta voru mjög tilfinningaríkir fjórir dagar. Ég var algjörlega búin líkamlega en líður miklu betur núna og það er eins og þungar birgðar hafi verið fjarlægðar af herðunum.  Ég hélt samt áfram að senda föður mínum ást. En eitthvað undarlegt  gerðist eigi að síður rétt eftir að ég kom út úr þessu tilfinninga ringulreiðar tímabili.

Í hugleiðslu mánudagsmorguninn  20. janúar, 2010 sendi ég föður mínum ást í rósagarðinum sem ég hafði búið til fyrir heilunina. Þetta var fimmti dagurinn sem ég sendi honum ást frá því að hin mikla heilunar krísa hófst í síðustu viku. Á meðan ég var að rétta honum eina af stærstu rauðu rósunum, sagði hann mér að ég væri búin að senda honum nóg af ást og hann þakkaði mér fyrir að hafa gert það. Hann sagði að það væri honum mikils virði.

Þennan morgun gat ég séð hann greinilega. Hann var aftur orðin 30 ára í útliti. Hann var mjög myndarlegur og fullur af orku. Hann var í kínverskum kyrtli, fötum sem voru mjög vinsæl á sínum tíma. Hann var mjög alvarlegur þennan morgun. Ég var hissa á því og hann sagði mér að hann væri tilbúinn að snúa aftur til jarðarinnar og að hann myndi ekki vera með mér héðan í frá. Hann bað mig um að hætta að senda sér heilun þar sem hann sagði að sú heilun og ást sem ég hefði sent honum hafi hjálpað honum gríðarlega og nú væri hann tilbúinn til þess að fara aftur til jarðarinnar.

Hann gaf mér til kynna að hann væri að endurfæðast eftir einn eða tvo daga. Ég fann að ég varð svolítið döpur en líka ánægð með hann og mig.  Vitandi að sú ákafa  hreinsun sem ég hafði unnið að á síðustu dögum hafði algjörlega losað hann frá mér á tilfinninga sviðinu, það var mikil losun fyrir okkur bæði, sem þýðir að ég held ekki lengur í hann og hann getur gert það sem er best fyrir sálina hans, en hann hefur ekki lengur nein neikvæð vandamál tengd mér. Ég var mjög ánægð með að hlutirnir hefðu snúist á þennan veg. Það sýnir bara hversu mikilvægt það er að losa tilfinningar okkar út. Ég vissi ekki ég hafði haldið honum frá því að halda áfram með sálarþroskann.

Framhald.....

 

17.  febrúar 2010

Umferðin var mjög hæg á meðan ég var að keyra til vinnu, ég var á eftir mörgum skólabílum, ég gat því keyrt hægt og hlustað á tónlist.  
Allt í einu, birtist faðir minn mér. Ég var undrandi á útliti hans. Hann var alvarlegur og svolítið sorgmæddur. Hann sagði mér að hann yrði að segja, "Bless" við mig núna. Ég spurði hann hvers vegna? Hann sagði að hann væri að endurfæðast núna.  

Þegar ég heyrði hvað hann sagði, hélt ég að ég væri að heyra eitthvað vitlaust. Ég gerði ekki ráð fyrir að hann færi svona fljótt.

Þegar ég náði föður mínum út af gráa svæðinu í andlega heiminum fyrir nokkrum árum, sagði ég við hann að ég væri að bíða eftir því að hann kæmi aftur til fjölskyldu minnar, við gætum hjálpað hvort öðru og leyst vandamál okkar saman.
Honum var kleift að koma út úr gráa sviðinu vegna þessa og dvaldi í lærdómssalnum við að læra umburðarlyndi og að undirbúa næstu endurfæðingu. Nokkrum mánuðum síðar fékk ég það staðfest frá meistaranum Maitreya að faðir minn gæti orðið einn af barnabörnunum mínum.

Hins vegar, á meðan ég var í þessari djúp hreinsun í þetta sinn (15. janúar var sólarmyrkvi 25° í steingeit nákvæmlega á sama tíma og Kiron 25° í steingeit í fæðingarkortinu mínu) eftir að ég lauk samtali mínu við föður minn hafði ég sterka tilfinningu fyrir því að faðir minn myndi ekki endurfæðast sem
einn af barnabörnunum mínum þegar ég hafði hreinsað stöðnuðu orkuna á milli okkar. Hann mun vera frjáls að velja það sem er best fyrir sálarþroska hans og hann er laus frá mér.

Svo að þennan morgun kom hann til að kveðja mig. Ég var ánægð fyrir hans hönd, en líka dálítið leið þar sem öllu á milli okkar var lokið og ég mun halda áfram og get ekki hitt hann aftur á ferðalagi sálar okkar. Ég spurði hann hvar hann ætlaði að vera. Hann sagði að hann myndi endurfæðast  í Kína og það væri besti staðurinn fyrir hann að vinna út karmað sitt. Ég spurði hann í hvaða fjölskyldu hann myndi verða í. Allt í einu komu upplýsingarnar til mín um að hann ætlaði sér að endurfæðast í fjölskyldu móður minnar og verða barn móður minnar.

Framhald ....

 

Efst á síðu

Bréfin hennar Jean

Ýmislegt

Heim


 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur