Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 


Hvernig hægt er að fyrirgefa og sleppa VIII



Framhald af sjöunda bréfi skrifað af Jean Luo

13. febrúar 2010

Daginn áður en þú lést, hafði ég sterka tilfinningu fyrir því að ég ætti að hringja í þig og ég gerði það. Ég talaði við þig um engla og um að lífið héldi áfram eftir líkamlegan dauða. Ég sagði við þig: "Ég veit að þú trúir ekki á framhaldslíf, en ég vil að þú hlustir á mig, sama hvað gerist hjá þér, þú verður að leita að ljósi og fara í ljósið og þú munt verða hólpinn. Og þá muntu vita ég ég hafði rétt fyrir mér." Þú sagðir mér að þú tryðir á mig. Þetta var í fyrsta skipti í öllu mínu lífi, sem þú sagðir þessi orð í einlægni. Ég var svo ánægð að þú skildir segja þetta.

Um hádegisbilið daginn eftir var ég svo döpur og þung þar sem ég sat fyrir utan rannsóknarstofuna og bað fyrir þér. Það kvöld fór ég á bænafund í kirkjunni til þess að biðja fyrir þér. Þegar ég kom heim, beið dóttir mín eftir mér til þess að segja mér að þú værir látinn. Þrátt fyrir að ég væri undirbúin þá var mér samt brugðið við fréttirnar. Ég fór beint inn í svefnherbergið mitt og grét og grét. Ég var svo reið við Guð hvers vegna hann hafði ekki hlustað á bænir mínar og af hverju hann tók þig í burtu áður en þú tryðir á hann. Ég bað og grét og sofnaði á gólfinu. Ég heyrði engin svör við bænum mínum.  En þegar ég vaknaði morguninn eftir fann ég fyrir friðsæld.

Ég gat ekki farið aftur til Kína til þess að fara í jarðarförina þína. Fyrrverandi eiginmaður minn fór fyrir okkur. Fyrir jarðarför, spurði vinnuveitandinn þinn bræður mína og systur, hvort þau hefðu einhverjar óskir. Bræður mínir og systur hugsuðu ekki um sjálfa sig, en höfðu áhyggjur af stjúpmóður okkar. Þau voru undrandi á því að hann hafði umboð þitt til þess að eftirláta stjúpmóður okkar allar eigur þínar án þess að láta börnin þín vita, ég gat ekki trúa því að þú útilokaðir öll börnin þín og eftirlétir stjúpmóður okkar allt. Það snérist ekki um peninga, það var um það hversu mikið þér þætti raunverulega vænt um þín eigin börn.

Hver annaðist þig á meðan þú varst veikur? Það voru systur mínar. En þú sagðir ekkert til þess að þakka þeim fyrir umhyggjuna. Þær áttu fjölskyldur, þær þurftu líka að vinna en þær tóku snúning til þess að líta eftir þér.  Þú sýndir þeim ekki þakklæti. Þú ollir þeim vonbrigðum. Hvers konar faðir varstu? Þú kvartaðir um að börnin þín fögnuðu ekki afmælinu þínu, en hefur þú einhvern tíma hugsað um það sem þú hefur gert þeim? Hefur þú einhvern tíma elskað þau eins og alvöru faðir? Ég gat ekki dæmt þig því ég var ekki þar. Ég er bara að spyrja þig þessarar spurningar. Bræður mínir og systur vildi ekki neitt frá þér nema ást þína og viðurkenningu. Þau gáfu stjúpmóður okkar allt vegna virðingar sinnar. Ég vildi að þú gætir opnað augu þín og hjarta þitt gagnvart þeim til þess að sjá hversu mikið þau elskuðu þig og hversu mikið þau þráðu ást þína vegna þess að þú varst þeirra eini faðir.  

Framhald.....

 

Lokahluti

14. febrúar 2010

En ég þakka þér fyrir að vera faðir minn. Ég þakka þér fyrir að vera eins og þú varst. Án hjálpa þinnar, hefði ég ekki orðið sú sem ég er í dag. Ég hefði ekki hafið andlega leit og hefði ekki vitað tilgang lífs míns og lífsáætlun ef þú hefðir ekki fengið krabbamein.  Ég þakka þér fyrir að þú fórst ekki til helvítis. Þú ert enn á lífi og dvelur í andlega heiminum við að læra umburðarlyndi og að undirbúa næsta líf þitt. Ég þakka þér fyrir að koma í kennslustund sem ég var í og gefa mér skilaboð um að þú værir stoltur af mér vegna minnar andlegu leiðar. Jafnvel þó að þau hafi komið eftir að þú snérir aftur til andlega heimsins, þá varstu að minnsta kosti stoltur af mér! Ég fór í gegnum heilunar krísu í heila viku vegna þessa. Ég grét í heila viku til þess að þakka Guði fyrir að blessa  þig og að þú værir enn á lífi! Ég þakka þér fyrir að vera faðir minn. Ég þakka þér fyrir að hjálpa mér að læra lífslexíur mínar.

Ég skrifa þessi orð í tengslum við líf mitt með þér úr djúpum tilfinninga minna og ég veit ég þarf að láta þau fara. Ef ég geri það ekki, þá er sama hversu mikla heilun ég hef gert þessi orð og tilfinningar myndu halda áfram að vera djúpt í undirmeðvitundinni og verða uppspretta fyrir neikvæðni. Með því að leyfa þeim að koma í ljós, þá hafa þær ekki lengur vald yfir mér. Eftir allt saman, þá stendur aðeins eftir hinn sanni kærleikur og skilningur. Öll reiði, sársauki, hatur, biturð og sorg eru farin út í alheiminn, en ástinn verður eftir. Ást er meginundirstaða okkar, ást er okkar sanna sálartenging. Að lokum, vil ég segja þér, ég er stolt að eiga föður eins og þig til þess að kenna mér allt sem ég þarf að læra og fyrir að hafa unnið dásamlegt verk. Ég elska þig mjög mikið. Í hjarta mínu elska ég þig alltaf eins og þú ert í raun veru alveg sama hvar þú ert og hvað þú gerir. Ég þakka þér innilega fyrir að vera hluti af lífi mínu. Þakka þér og Guð blessi þig! "

Ég grét og grét á meðan ég var að skrifa þetta bréf til föður míns. Ég þurfti að vera mjög heiðarleg til þess að segja þessi orð. Það tók mig heilan dag að skrifa þetta niður og það tók mig þrjá daga að fara í gegnum heilunar ferlið. Eins og ég sagði, eftir að ég hef farið í gegnum þetta allt er að lokum aðeins ástin eftir.

Kæri lesandi minn ég skrifa þetta í þeim tilgangi að deila og fræða. Ef þú vilt tjá tilfinningar þínar vegna einhvers, þá getur þú skrifað það niður eins og þessi manneskja væri fyrir framan þig. Þú verður að skrifa í hreinskilni. Hins vegar, þegar þú hefur lokið því, þá þarft þú að eyðileggja það en ekki senda til viðkomandi. Megin tilgangurinn er að losa staðnaðar tilfinningar þínar svo að þú getir haldið áfram á andlegu ferðalagi þínu, en ekki til þess að særa einhvern. Þú þarft að vera varkár til þess að skapa ekki karma með því að særa aðra. Mundu að tala þinn sannleika hljóðlega og greinilega í kærleika. Þakka þér fyrir!

 

Jean Luo blogg

Efst á síðu

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa II

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa III

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa IV

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa V

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa VI

Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa VII

Bréfin hennar Jean

Ýmislegt

 

Heim

 

 

 

 

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur