![]() |
||||||||||||||||||||||
Hvernig hægt er að fyrirgefa og sleppa VIIFramhald af sjötta bréfi skrifað af Jean Luo 11. febrúar 2010 Þótti þér vænt um mig í raun og veru? Ég greiddi ferðina fyrir ykkur bæði til USA vegna þess að ég elskaði þig mjög mikið. Ég lofaði þér að ég skyldi gefa þér auka peninga, en ég þurfti þessi ekki. Hefur þú einhvern tíman spurt mig hvernig líf mitt var í Bandaríkjunum fyrstu árin? Hefur þú einhvern tíma viljað vita hvaða erfiðleika ég gekk í gegnum til þess að komast af í þessu framandi landi ein með dóttur mína? Nei, þú vildir það ekki. Allt sem þú vildir var fyrir þig. Þú virtir mig ekki einu sinni sem dóttur þína. Þú vildi jafnvel ekki tala við mig beint, en sendir stjúpmóður mína til þess að biðja um peninga. Ég hafði engar skyldur við hana en ég gerði það vegna þess að ég elskaði þig. En það sem þú gerðir við mig var ekki eitthvað sem feður gera. Hvers konar maður varst þú? Tveimur dögum síðar fórst þú og stjúpmóðir mín aftur til Kína. Áður en þú fórst, keypti ég mismunandi útgáfur af biblíum með þá von að þú myndir leita að Guði. Ég keypti líka fullt af sælgæti og súkkulaði fyrir þig og fyrir börn systra minna og bræðra. Ég hélt að þú myndir gefa þeim öllum. Systir mín varð mjög undrandi þegar ég spurði hana mánuði síðar hvort hún hafi fengið sælgætið. Þú gafst þeim ekki allt sem ég keypti fyrir þau aðeins lítinn part af því. Af hverju hélstu þessu öllu fyrir sjálfan þig? Varst þú nirfill? Ég varð jafnvel enn meira undrandi á því að rekast á allar biblíurnar sem ég keypti fyrir þig þegar ég var að þrífa herbergið. Þú skildir þær eftir undir sófanum mínum. Ég var í sjokki yfir því sem þú gerðir. Ég gat ekki skilið hvers konar faðir þú varst. Hvað gerði ég til þess að eiga skilið svona meðferð? Þú gast talað við mig en þú gerðir það ekki.
12 febrúar 2010 Einum og hálfum mánuði síðar, fékk ég bréf frá þér með 3000 dollurum í reiðufé. En peningarnir voru allir mölétnir, hver einasti 100 dollara seðill var einungis hálfur. Þú sagðir að þú hafir ekki farið í bankann til þess að leggja þá peninga inn sem ég gaf þér, þú vafðir þá inn og faldir þá undir rúminu þínu. Því miður, þá var loftslagið í heimabæ okkar mjög rakt svo að innan mánaðar, höfðu peningarnir verið étnir af mölflugum. Þú vildir að ég færi í bankann til þess að finna leið til að bjarga peningunum fyrir þig. Þú varst fullur örvæntingar um að tapa þeim. Ég var svo hneyksluð og skammaðist mín svo mikið fyrir það sem hafði gerst. Ef þú hefðir einhvern tíman treyst mér og hlustað á mig þá hefði þetta ekki gerst. En núna varstu búin að koma þér í þetta klandur og þú vildir að ég kæmi þér út úr því. Ég var mjög reið. Reyndar var ég brjálæðislega reið. Ég var mjög sorgmædd að eiga föður eins og þig. Tveimur mánuðum eftir að þú snérir aftur til Kína, greindist þú með lungna krabbamein. Þú varst undir það búinn að verða langlífur þar sem báðir foreldrar þínir urðu 96 ára. Þess vegna hélstu að þú myndir verða langlífur. Það var þess vegna sem þú giftist konu sem var 18 árum yngri en þú. Þú þjálfaðir hana í að elda fyrir þig. En þú gast ekki stjórnaði örlögunum. Þú fékkst lungna krabbamein. Þú skrifaðir mér bréf um það. Það var sama hversu reið ég var við þig, ég elskaði þig og þótti vænt um þig vegna þess að þú varst eini faðir minn á jörðinni. Ég bað mjög heitt til Guðs um að bjarga þér. Ég bað Guð meira að segja um að taka mitt líf og leyfa þér að lifa svo að þú fengir tækifæri til þess að trúa á hann. Vegna veikinda þinna, byrjaði ég að leita að hinum eiginlega tilgangi fyrir tilveru okkar. Ég vildi ekki að þú færir til helvítis svo ég vildi finna út hvort það væri til helvíti og hvort þú myndir fara til helvítis vegna þess að þú trúðir ekki á Jesú Krist. Þetta var upphafið og vitundar kalli sálar minnar til þess að hefja hina eiginlegu andlegu leið mína. Þú lést stuttu eftir 74 ára afmælið þitt.
Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa II Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa III Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa IV Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa V Hvernig er hægt að fyrirgefa og sleppa VI
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||