Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

Hvernig hægt er að fyrirgefa og sleppa II

 

 

Framhald af fyrsta bréfi skrifað af Jean Luo

28. janúar 2010

Hér er það sem ég sagði við föður minn:

"Faðir, ég vil að þú vitir að ég elska þig mjög mikið. Í hjarta mínu elska ég þig alltaf. En þegar þú varst faðir minn, var ég mjög reið við þig. Ég þarf að segja þér þetta allt svo að þú vitir hvers vegna ég var svo reið við þig.

Ég man  aldrei eftir að hafa haft þá skýru og fallegu föður ímynd sem ég óskaði mér. Mér fannst ég aldrei eiga raunverulegan föður í lífi mínu.  Alltaf þegar ég og fjölskylda okkar þurftum á þér að halda þá varstu ekki til staðar. Móðir mín var veik á spítala þegar ég var mjög ung og ég og bróðir minn vorum alein heima, við þurftum á þér að halda, en þú varst ekki þar. Við vorum of ung til þess að elda mat fyrir okkur, við sveltum þangað til móðir mín laumaðist út af spítalanum til þess að elda fyrir okkur. En þú varst ekki þarna og þú vissir jafnvel ekki hvað við þurftum að ganga í gegnum.

Þegar þú varst heima, þá agaðir þú bróðir minn og mig með heraga. Þú varst mjög strangur. Þótt þú berðir mig ekki, þá slóst þú bróðir minn mörgum sinnum, ef hann uppfyllti ekki staðalinn þinn, þú slóst hann annað hvort eða greipst hann og fleygðir honum út um dyrnar. Ég var hrædd við það sem þú gerðir við hann svo ég lærði að hlýða þér og gera nákvæmlega það sem þú baðst um. Jafnvel enn þann dag í dag, held ég í þá sannfæringu að ég þurfi að gera hlutina fullkomlega til þess að halda mér öruggri og án vandræða.

Þegar ég var 6 ára voru allir jafnaldrar mínir að fara í skóla en ég varð eftir vegna þess að þú varst ekki heima og móðir mín var á spítala. Ég hafði ekki foreldra til þess að skrá mig í skólann. Svo að ég missti af skólanum og þurfti að bíða þangað til árið eftir. Þegar ég fór í skóla árið eftir, var ég ári eldri en flestir bekkjarfélagar mínir. Mér fannst það mjög vandræðalegt og sjálfstraust mitt beið hnekki. Þegar dóttir mín fór í skóla, gerði fæðingardagurinn hana eldri en skólafélaga hennar svo að ég bað manninn minn að breyta fæðingardegi hennar þannig að hún virtist yngri til þess að hún myndi ekki þurfa að upplifa það sem ég hafði upplifað á þeim aldri.

framhald.........

Jean Luo blogg

Efst á síðu

Hvernig á að fyrirgefa og sleppa

Hvernig á að fyrirgefa og sleppa III

Bréfin hennar Jean

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur