Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

Hvernig hægt er að fyrirgefa og sleppa

 

 

Það sem hér fer á eftir er af netsíðunni hennar Jean

27. janúar 2010

Ég hugsaði með mér, að faðir minn væri kominn inn í rósagarðinn, sem ég bjó til fyrir heilun. Ég sá sjálfa mig velja fallegustu bleiku rósirnar úr garðinum og rétta honum þær með báðum höndum og sagði við hann, „ég fyrirgef þér allt sem ég hef haldið í, í sambandi við þig og ég elska þig." Þegar ég gerði þetta, þá byrjaði ég að tala.  Ég varð undrandi á að heyra sjálfa mig tala um allt draslið sem ég var reið við föður minn útaf.  Ég varð miður mín vegna þeirra orða sem ég sagði alveg eins og ég gæti ekki trúað þeim, en þetta var svo skýrt og ljóslifandi.  Ég vissi að það þyrfti að segja þau við hann og að ég yrði að tjá tilfinningar mínar sem ég hef haldið inni, ef ég vildi hreinsa þær allar út úr sálinni. Þess vegna lét ég orðin einfaldlega flæða út úr munninum.

Ég grét og grét þegar ég var að þessu, allar bældu tilfinningarnar voru að koma upp á yfirborðið og fara aftur út í alheiminn sem orkuform. Ég fann meiri og meiri létti.  

Tilfinningar eru orka sem við fáum að láni frá alheiminum á því augnabliki sem við vorum að skapa þær. Þegar við losum þær út, þá gefum við orkuna til baka sem við fengum að láni frá alheiminum. Þegar þessu er lokið, þá hefur tilfinningunum verið eytt úr tilfinninga líkamanum svo að þær hafa ekki lengur vald yfir okkur.  

Tilfinningar geta aðeins haft vald yfir okkur á meðan þær eru grafnar í undirmeðvitundinni.


Ég talaði við föður minn í nokkrar klukkustundir og ég var mjög þreytt þegar því var lokið.  Þetta skyndilega ferli gerði mér kleift að sjá hversu öflugar tilfinningar okkar geta verið. Þær eru uppspretta óhamingju okkar og erfiðra sambanda. En við höfum tilhneigingu til þess að bregðast við ytri aðstæðum, fólki eða hlutum, o.s.frv og vitum ekki að hin raunverulega orsök býr innra með okkur. Við munum halda áfram að bregðast við aftur og aftur, endurtaka sama mynstrið og sömu vandamálin þar til við hreinsum þau hið innra.

Eftir þessa miklu losun, var ég í svo miklu sjokki yfir því að ég hefði ennþá svona djúpar tilfinningar gagnvart föður mínum eftir 7 ár hörku vinnu í þessum málum! Vegna reynslu minnar í tilfinninga hreinsun gerði ég mér grein fyrir því að ég yrði að vera sönn tilfinningum mínum og tjá þær eins og ég skapaði þær án þess að dæma eða gagnrýna. Á þennan hátt get ég algjörlega losað út það sem ég hef skapað.

Þessi gríðarlega losun hjálpaði mér að uppgötva að þó að ég hafi verið að hreinsa út vandamál og tilfinningar í sjö ár sem eru tilkomnar vegna föður míns þá hafði ég ekki gert það með 100% heiðarleika þar sem ég hef tilhneigingu til þess að hoppa yfir síðast skrefið: að segja honum að ég fyrirgæfi honum og elskað hann áður en ég leyfði tilfinningunum að vera tjáðar 100%.  Ég hélt að þar sem ég fyrirgæfi honum og sendi honum ást væru tilfinningarnar farnar.

Já, að fyrirgefa og senda ást er mjög mikilvægt, það eru mjög mikilvægir þættir til þess að breyta gamla mynstrinu mínu og sleppa fortíðinni. Það þarf eigi að síður að tjá tilfinningar fyrir það augnablik sem ég skapaði þær fyrir mörgum árum. Á þennan hátt , geta þær verið losaðar út á heiðarlega hátt án þess að halda nokkru eftir hið innra.

Ég veit að ferlið við að hreinsa getur verið mjög sársaukafullt og yfirþyrmandi, stundum getur það verið mjög skelfilegt vegna álags á tilfinningar okkar. Til þess að losa þær án þess að særa einhvern eða búa til karma, er ein öruggasta leiðin að skrifa þær niður eins og ef við værum að tala við manneskjuna sem tilfinningarnar tengjast. Þegar tilfinningarnar eru tjáðar í gegnum skrif okkar, þá ættum við að eyða því sem við skrifuðum.  Allt ferlið er fyrir okkur til þess að losa út tilfinningar okkar svo að við getum verið laus við sársauka, reiði eða hatur, en ekki til að hefna eða meiða einhvern.

Ég hef ákveðið að setja bréfið sem ég skrifaði föður mínum til þess að leysa út bældar tilfinningar mínar hér svo að það geti hjálpað þér að sleppa tilfinningum þínum á viðeigandi hátt.

Markmið mitt er að deila reynslu minni með þér ef þú þarft líka að fara í gegnum þína reynslu án ótta, án þess að dæma og gagnrýna neikvæðar tilfinningar þínar. Mundu að þetta er um að losa mínar tilfinningar sem ég bjó til fyrir mörgum árum, þetta er bara minn sannleikur um mínar tilfinningar, en ekki endilega rétt. Heildar tilgangurinn er að losa út bældar tilfinningar en ekki að dæma hvort þetta er rétt eða rangt.

 framhald.....

Jean Luo blogg

Efst á síðu

Bréfin hennar Jean

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur