|
Að borga karma og skapa karma – 4. hluti
Jean Luo bloggar
Framhald á fyrri hluta
8. apríl 2010
Á tímum ameríska borgarstríðsins var ég þátttakandi í hernaðaraðgerð við að yfirtaka býlið hennar vegna staðsetningarinnar, ég fór eftir fyrirskipunum um að yfirtaka býlið og heimili hennar. Þrátt fyrir að ég hafi ekki verið sú sem tók þá ákvörðun, var ég sú sem tók eignina af henni, það var ennþá geymt í undirvitundar minni hennar sem ótti, óöryggi og vantraust. Nú þarf ég að hvetja hana og hjálpa henni að halda áfram á andlegu brautinni.
Nokkrum dögum síðar, skapaði andlegi heimurinn aðstæður þar sem hún þurfti að hitta mig til að biðja mig að hjálpa sér þar sem hún gat ekki náð að hreinsa þessa hindrun. Um leið og hún talaði við mig, vissi ég hvað ég þurfti að gera. Þess vegna bauð ég henni í fyrri lífa skoðun. Í þessari fyrri lífa könnun, losaði hún út mjög niðurbælt dótarí. Eftir það varð allur líkami minn verkjaður og kaldur. Það var svo mikið að ég átti jafnvel erfitt með að aka heim. Ég þurfti að biðja þá í andlega heiminum að hjálpa mér að keyra heim svo ég væri örugg. Um leið og ég kom heim, fór ég beint að sofa án þess að þvo mér. Það eina sem mig langaði til var að komast undir hlýja sængina vegna þess að ég skalf alla leiðina heim. Ég brást við eins og ég væri drukkinn!
Morguninn eftir var ég aftur orðin eðlileg eins og ekkert hefði gerst. Tveimur dögum síðar hitti ég hana aftur, orkan hennar var algjörlega breytt. Hún leit út fyrir að vera miklu ánægðari. Hún sagði að fyrri lífa meðferðin sem hún gerði með mér hafi hreinsað út mjög djúpt dót og hún fann að það hafði orðið orku umbreyting sem gerði henni kleift að vinna að verkefnum sínum aftur. Ég hef greitt henni karma skuldir mínar til baka með þessu, þó svo að ég hafi orðið að þjást mikið.
Bæði þessi reynsla og hin fyrri fengu mig til þess að hugsa mikið. Í öðru tilfellinu, þótt ég hafi ég hafi ekki verið sú sem tók þá ákvörðun að kvelja vinkonu mína, heldur vegna þess að ég var í hópnum, ég stóð ekki með henni, ég var ekki góð við hana heldur, bara til þess að halda frið við allan hópinn, þar með var ég búin að búa til karma fyrir sjálfa mig. Þegar ég var að hugsa um þetta, þá gerði ég mér loksins grein fyrir því hversu mikilvægt það væri fyrir mig að standa í eigin sannleika, jafnvel þó að sannleikurinn minn væri kannski algjörlega frábrugðin hinum úr hópnum, en ég er bara ábyrg fyrir mig, mínum hugsunum, vali, athöfnum og viðbrögðum. Ef ég geri það ekki, þá mun ég skapa karma. Sama hvað aðrir kjósa að gera, get ég bara verið ábyrg fyrir mínum ákvörðunum og afleiðingum þeirra. Ef ég hefði komið vel fram við vinkonu mína, þá hefði ég ekki búið til karma fyrir sjálfa mig.
Framhald ....
Að borga karma og skapa karma – 5. hluti
9. apríl 2010
Í hinu tilvikinu var ég ekki ein af þeim sem gaf skipun um að taka landið og heimilið af öðrum vini í fyrra lífi, en ég var sú sem vann vinnuna. Ef ég hefði gert það með vinsemd, myndi ég ekki hafa valdið henni svona miklum sársauka og ég hefði ekki búið til karma fyrir sjálfa mig. Með því að taka orku sársaukafullra tilfinninga út úr kerfinu hennar hef ég upplifað hennar sársauka. Í sannleika sagt þá var það ekki þægilegt.
Þetta voru mjög góð dæmi og kennsla fyrir mig um karma. Ég geri mér grein fyrir því að til þess að forðast að skapa karma, þarf ég að vera meðvituð um hvað ég hugsa, hvað ég vel og hvað ég geri. Alltaf að gera hlutina með vinsemd og samúð, ekki vera hrædd við að ganga í burtu frá þeim aðstæðum sem mér líður ekki vel með, ekki vera hrædd við að segja nei. Að öðrum kosti með því að fylgja öðrum eða fyrirskipunum annarra, þá get ég ennþá búið til karma fyrir sjálfa mig. Það vil ég svo sannarlega ekki. Ég hef unnið svo mikið í því hreinsa karma skuldir mínar, ég vil ekki búa til nýtt karma fyrir mig á sama tíma vegna þess að ég tek ekki ábyrgð á eigin hugsunum, þrám, vali, aðgerðum og viðbrögðum.
Neikvætt karma verður til af neikvæðum aðgerðum okkar eða viðbrögðum, valda alltaf sárindum, skaða eða fara illa með aðra, í því því sambandi, göngum við á vilja þeirra, styrk, vonir, óskir og drauma í lífi þeirra eða sálarþroska, með því að borga karma, þá hjálpum við þeim að skila því aftur sem við höfum tekið frá þeim. Þegar þetta hefur verið gert, þá er hægt að koma jafnvægi á karma orkuna og karma skuldin getur verið greidd svo að við getum haldið áfram sem sál. Annars getum við ekki haldið áfram fyrr en við höfum hreinsað allar okkar karma skuldir.
Við getum valið mismunandi leiðir til þess að greiða karma skuldir okkar. Við getum valið að upplifa sársaukann og missinn sem við höfum valdið öðrum, eins og ég gerði í hjónabands uppákomu sem var næstum búin að drepa mig. Ég gat ekki hlaupist á brott frá honum, sama hversu mikið ég reyndi það var eins og það væru örlög sem ollu þessu ástandi og ég þyrfti að vera bundin manninum og aðstæðunum þangað til karma orka væri algjörlega uppleyst. Á þennan hátt, hef ég lært að ég myndi aldrei gera þannig hluti aftur. Við getum líka valið að hjálpa við góðgerðarstarfsemi, á móttöku svæði í andlega heiminum eða á jörðinni. Við getum öll valið mismunandi leiðir til þess að aðstoða þá sem við skuldum karma til þess að þroskast andlega, eins og ég gerði með vinkonu minni og nemendum sem nefnd eru í fyrra bloggi mínu.
Framhald......
Að borga karma og skapa karma – 6. hluti
10. apríl 2010
Að borga karma er ekki um það sem við borgum, í mínum skilningi, heldur hvernig við borgum og hvað við getum lært af því. Eins og ég nefndi í fyrra bloggi mínu „hlustið á innsæið.“ Þegar dekkið á bílnum mínum var gjörsamlega sprungið, þurfti ég að biðja um hjálp. Eini bíllinn sem stoppað hjá mér var sendibíll með tveimur konum og barni, þær hjálpuðu mér á myrkri og kaldri nóttu. Góðvild þeirra og hjálpsemi léttu vissulega á mjög svo stressandi reynslu minni. Það breytti þessari hræðilegu reynslu í upplífgandi og fallega upplifun.
Eftir að þetta gerðist, velti ég því fyrir mér hvort það væri karma tenging á milli mín og þessa fallega fólks sem hafði hjálpað mér. Ég spurði systir þessara spurningar og ég fékk svarið: Þær voru að endurgeiða fyrri lífa skuld við mig. Í öðru lífi hafði ég greitt þeim fyrir að fara með mig til Kaliforníu á tímum amerískra brautryðjenda. En þar sem ferðalagið varð hættulegra og erfiðara, þá yfirgáfu þær mig á tjaldsvæðinu og ég þurfti að borga öðrum vagni til þess að fara með mig til Kaliforníu.
Þetta fannst mér alveg passa í sambandi við frumspekina, allt er orka. Orku þarf að jafna, orka þarf að flæða. Ef hún flæðir ekki, þá staðnar hún og stíflar lífsorkuna okkar. Ef orka er úr jafnvægi, þurfum við að vinna að því að fá orku til baka. Með því að hjálpa mér, hafa þær greitt karma skuldir sínar við mig. En vegna gæsku og vilja þeirra, var ég svo snortin af þeim, ég var mjög þakklát í þeirra garð.
Eftir þennan atburð, var ég fær um að átta mig á því að þekkja karma okkar er alltaf gott til þess að hjálpa okkur að skilja eitthvað og að taka réttar ákvarðanir, en við vitum oft ekki nákæmlega hvað karma okkar er eða hvort við höfum karma gangvart ákveðnum einstaklingi eða aðstæðum. Eina leiðin til þess að borga karma og forðast að skapa karma er með opnu hjarta, ekki halda í neinar neikvæðar hugsanir og tilfinningar gagnvart öðrum, alltaf að vera vingjarnleg, jákvæð og styðjandi, ekki blanda ykkur í viðfangsefni annarra, svo sem uppákomur í lífi þeirra, ákvarðanir þeirra, lexíur og karma.
Framhald ...
Að borga karma og skapa karma – síðasti hluti
11. apríl 2010
Gott dæmi er þetta fallegt par, ég veit ekki hvort þær vita um karma eða hvort þær eru á andlegri braut. Það skiptir ekki máli, það sem skiptir máli er að þær hafa hið fallegasta hjarta, þær fylgdu hjartanu sínu og hlustuðu á innsæið, þær stoppuðu í myrkri og kaldri nóttinni til þess að hjálpa mér að skipta um dekk þannig að ég gæti farið heim. Í öllu ferlinu, var góðvild þeirra, hlýja og húmor og þær gerðu allt sitt besta til þess að hjálpa mér, vegna þessa, hafa þær greitt karma sitt, það er ekki einu sinni víst að þær viti um það og en ég er í hreinskilni sagt innilega þakklát þeim. Þess vegna er orkan í jafnvægi og við erum öll fær um að halda áfram á okkar andlega ferðalagi.
Við erum öll sálir á ferðlagi til þess að þroska sálina með því að læra líf lexíur okkar, borga karma okkar í gegnum lífsreynslu okkar á jörðinni. Þetta er hinn sanni tilgangur lífsins. Sama hvað við gerum, hvar við erum, við erum öll með leiðsögn og leiðbeinanda okkar í andlega heiminum, til þess að takast á við fólk sem við gerum ráð fyrir að hitta til að fara á stað sem við þurfum að vera á, jafnvel verstu aðstæður sem við erum í eru búnar til fyrir okkur til þess að læra og vaxa sem sál. Það er kaldhæðnislegt, að það erum við sem veljum að fara í gegnum þetta, við erum ábyrg fyrir öllu því sem gerist. Það er engin tilviljun í lífi okkar.
Að tengjast andlega hlutanum í okkur er mjög mikilvægt þar sem það mun hjálpa okkur í samskiptum við andlega leiðbeinendur okkar og verndara, það mun gera okkur kleift að tengjast æðra sjálfinu okkar, það mun gera okkur kleift að fara auðveldar í gegnum allar erfiðar aðstæður þar sem við munum hafa þá vitund, skilning og mismunandi sjónarhorn til þess að skoða hluti og aðstæður. Í stað þess að sitja fastur í aðstöðu og stynja og andvarpa, eyða mikilli orku í að kvarta um ástandið og geta ekki haldið áfram, getum við séð ástandið í ljósinu, í jákvæðu samhengi, sjá það sem mikilvægt tækifæri fyrir sál okkar að til þess að læra og vaxa. Því fyrr sem við gerum þetta, því auðveldara og hraðar komumst við í gegnum erfiðleikana. Verið meðvituð um þetta, það getur verið miklu auðveldara að greiða karmað okkar og að skapa ekki nýtt karma.
Lífið er ferðalag, ævintýri og í stöðugu breytinga ferli. Takið því sem lífið leiðir okkur og leiðbeinir að, við erum fær um að njóta fegurðar þess og dýrð. Hversu dásamlegt mun það vera ef við getum ennþá hlegið og hlegið sama hvað við höfum farið í gegnum. Ég tel þetta vera okkar sanna anda, æðra sjálf, hinn guðlegi neisti Guðs, sem er stórkostleg orka.
Efst á síðu
Bréfin hennar Jean
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|