|
Að borga karma og skapa karma – 1. hluti
Jean Luo bloggar
5. apríl 2010
Ein helsta ástæðan fyrir því að við höldum öll áfram að koma til jarðarinnar, aftur og aftur, er karmað okkar. Karmað heldur okkur á hjóli endurfæðinga. Hvað er karma? Karma er eitt af alheimslögmálunum: orsök og afleiðing. Með öðrum orðum, við fáum það til baka sem við sendum út. Ef við sendum út gott, munum við uppskera gott, ef við sendum út, „slæmt“ þá munum við líka uppskera það. Það er hægt að skapa karma með hugsunum okkar, vali, aðgerðum og viðbrögðum, oftast tengist það tilfinningum okkar, svo sem ótta, óöryggi, hatri, reiði, öfund, græðgi og öllum öðrum neikvæðum tilfinningum.
Áður en ég tengdist andlega hlutanum af mér, var ég alltaf að kvarta yfir því hvers vegna líf mitt var svona þjáningarfullt. Ögrandi verkefni og hindranir héldu áfram að koma inn í líf mitt hvað eftir annað, mér fannst lífið ekki ánægjulegt svona yfirleitt, þess í stað voru einungis þyngsli og vonleysi. Ég var vön að finna svo mikil þyngsli að ég gat jafnvel ekki andað eðlilega. Þar sem ég hafði ekki andlega vitund, þá taldi ég mig einfaldlega óheppna manneskju.
Eftir að ég hóf andlega leið mína, hugsaði ég aldrei út í það að ég gæti skaðað einhvern með aðgerðum mínum eða viðbrögðum. Ég var vön að losa út fyrri lífa orku, það kom alltaf út með dramatískri tilfinningalegri losun. Ég spurði aldrei hvort ég skuldaði öðrum karma, mér fannst frekar að aðrir skulduðu mér karma. Þar til nýverið, með því að hækka tíðnina mínum, þá varð ég meira og meira meðvituð um karma. Andlegi heimurinn hefur fært mér fólk sem ég skuldaði karma eða skuldaði mér karma, það kom inn í líf mitt í gegnum margskonar mismunandi leiðir til þess að gera mér kleift að vinna út karma og til að koma orku jafnvægi aftur inn í tilveru mína.
Framhald....
Að borga karma og skapa karma – 2. hluti
6. apríl 2010
Þegar ég hélt áfram þessari ferð, varð ég er mjög meðvituð um mikilvægi þess að taka ábyrgð á hugsunum mínum, vali, aðgerðum og viðbrögðum. Fyrir nokkrum vikum, var falleg sál, náin vinkona mín að fara í gegnum stóra fyrri lífa losun. Við drógumst hvor að annarri miklu meira en áður. Hún átti mjög erfitt fyrra líf sem hafði valdið djúpu tilfinningalegu öri á sálinni og skaðaði sjálfstraust hennar verulega í fortíðinni og barst síðan áfram inn í núverandi líf.
Þegar hún talaði um þetta fyrra líf við mig, hafði ég á tilfinningunni að ég gæti hafa haft eitthvað að gera með þetta fyrra líf þar sem ég trúi því að það séu engar tilviljanir í lífi okkar. Allt sem gerist í lífi okkar og allir sem koma inn í líf okkar, jafnvel þó það líti út eins og af handahófi, þá er það alls ekki þannig. Við erum öll tengd með orku, að mestu leyti, getum við ekki séð í gegnum það með berum augum, en orka er hið raunverulega afl sem hefur á dulinn hátt með allar tengingar í lífi okkar að gera.
Þegar ég hafði unnið með henni að losa út þetta fyrra líf þá velti ég því fyrir mér hvort ég ætti karma með henni. Þessi hugsun fór um huga minn eitt augnablik og síðan hvarf hún. Síðan gleymdi ég því. Ég ætlaði að spyrja hana, en eitthvað truflaði mig þannig að ég spurði ekki. Hún spurði mig ekki heldur, en í millitíðinni, var hún líka með sömu spurningu í huga eins og ég. Þegar ég var að horfa á hana losa út þessa fyrri lífa orku þá hafði ég svo mikla ást og samúð til hennar. Ég var öðru megin við tölvuna mína, hún var hinu megin við tölvuna sína, við vorum aðskildar í mörg þúsund kílómetra fjarlægð, í sitthvoru landinu, en ég gat samt fundið orkuna koma út úr eter líkama hennar og koma út í gegnum efnis líkamann. Það var bara eins og eldfjall. Það þurfti mikið hugrekki hjá henni til þess að takast á við djúpan tilfinningalegan sársauka og áfall. Ég dáist sannarlega að vinkonu minni og virði hana mjög að hafa hugrekki til þess að takast á við þetta mjög svo djúpa tilfinningalega ör svo að það gæti hreinsast út úr sálarminninu.
Framhald....
Að borga karma og skapa karma – 3. hluti
7. apríl 2010
Þegar ég var að horfa á hana, spurði ég sjálfan mig, ef ég trúi því að, „ekkert gerist fyrir tilviljun“ hver væri þá tengingin á milli okkar? Ég gat ekki fundið neitt en mér fannst sem ég skuldaði henni karma og ég hefði eitthvað með þetta fyrra líf hennar að gera.
Næsta dag sendi vinkona mín mér tölvupóst um að henni hafi verið sagt af andlega heiminum að ég hafi verið í þessu fyrra líf þegar hún var að fara í gegnum áfalla reynsluna. Vegna þeirra upplýsinga, skrifaði ég til Sister (www.aurorasmessage.com) til þess að spyrja hana um þetta fyrra líf og til þess að finna út hvort ég skuldaði henni karma. Sister staðfesti að ég hafi verið í hópnum sem hafði kvalið vinkonu mína og valdið hinu stóra tilfinningalega öri á sálinni hennar. Þó að ég hafi ekki verið lykill manneskja og ég hafi ekki tekið ákvarðanir um hvernig ætti að kvelja hana, þá var ég meðlimur í þessum hópi og ég kom ekki fram við hana sem jafningja og ekki vingjarnlega heldur. Þess vegna skuldaði ég þessari vinkonu minni karma. Með því að leiða hana inn í fyrra líf, var ég fær um að hjálpa henni að losa út þessa miklu fyrri lífa orku og til að styrkja hana, þess vegna hef ég greitt henni karma skuld mína og komið jafnvægi á orkuna.
"Hérna fyrir ofan er Jean að skrifa um það þegar hún hjálpaði mér að vinna út gamalt líf sem ég átti í Egyptalandi þar sem ég fór í „vígsluna."
Önnur reynsla var með einum af útskrifuðu nemendum hennar Margaretar. Hún er líka vinur minn. Síðustu mánuði höfum við verið að vinna saman á kvöldin, ég gat fundið að það var eitthvað djúpt innra með henni sem hún þurfti að losa út. Hún sagði líka við mig að hún fyndi að það væri eitthvað djúpt innra með sér sem hefði hindrað og stoppað hana í að gera það sem hún vildi gera. Hún hafði unnið svo ákaft að því að hreinsa þessa hindrun, en einhvern veginn var hún ekki fær um það og hún var mjög svekkt vegna þessa.
Ég vissi ekki af hverju en ég mér fannst sem að hindrunin hefði einhvern veginn með mig að gera í fortíðinni. Þess vegna spurði ég systir / Karen hvort ég skuldaði henni karma og svarið var já. En ég þurfti að bíða eftir að hún myndi koma til mín til þess að biðja um hjálp. Það sem gerðist í fortíðinni var þetta:
Framhald ....
Efst á síðu
Bréfin hennar Jean
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
|