Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Fyrirgefningin

 

Það gagnast alltaf vel að fyrirgefa þeim sem hafa gert á okkar hlut, okkur sjálfum og því sem kemur til þín hverju sinni. Neikvæðar tilfinningar hefta orkuflæði líkamans, tilfinninganna og hugans. Ef hindranirnar eru miklar í orkunni veikist líkaminn og alvarlegir sjúkdómar geta gert vart við sig í líkama og huga.

Við það að fyrirgefa af öllu hjarta gefur þú þér og öðrum frelsi til að halda áfram á þroskabrautinni, líkamanum frelsi frá fortíðinni og jákvæð orka kemur inn í líf þitt. Þannig leysir þú einnig upp erfiðar tengingar milli þín og þess sem þú ert að fyrirgefa. Þessa æfingu er hægt að gera aftur og aftur, gott er að fyrirgefa öllum og öllu sem þér dettur í hug. Þú finnur hvað er nauðsynlegt hverju sinni, farðu eftir innsæinu þínu.

 

Æfingin

Finndu þér stað þar sem þú getur verið í friði og ró, kveiktu á kerti og komdu þér vel fyrir sitjandi á gólfinu eða á stól með hrygginn beinan.

Andaðu djúpt að og frá nokkrum sinnum þar til þú finnur frið og ró færast yfir þig.

Finndu svo ljósið í hjartanu þínu stækka og stækka.
Ljósið er í hjartastöðinni á móts við miðjan brjóstkassann, blíðlega færir þú vitundina þangað inn.
Skynjaðu ljósið þar og allt í kring...........Þú sérð fyrir þér lýsandi bjart musteri, fyrirgefningarmusterið.     Þú sérð að dyrnar eru opnar.

Þú gengur inn í musterið og á sérð að á miðju gólfinu er fyrirgefningaraltarið.
Það er úr hvítu lýsandi ljósi sem lýsir upp musterið.

Þú gengur upp að altarinu og sérð þar þann sem þú ætlar að fyrirgefa liggja á altarinu umvafin/n ljósinu hvíta.

Þú horfir á viðkomandi og finndu að hann eða hún er líka barn Guðs og kom inn í líf þitt til þess eins að kenna þér eitthvað um sjálfa/n þig hjálpa þér að horfast í augu við þína veikleika og læra að fyrirgefa af öllu hjarta.
Eins varst þú að kenna viðkomandi eitthvað um sig.


Þú segir þá í huganum og hjartanu þínu:

ÉG FYRIRGEF ÞÉR ALLT SEM ÞÚ HEFUR GERT MÉR, HVORT SEM ÞAÐ VAR VILJANDI EÐA ÓVILJANDI, RAUNVERULEGT EÐA ÍMYNDAÐ, Í ÞESSU LÍFI EÐA ÖÐRUM LÍFUM.

Þú sérð nú gullið ljós flæða niður úr hvelfingunni og umvefja þann eða það sem er á altarinu.

Þú segir aftur:

ÉG FYRIRGEF ÞÉR
Enn meira ljós flæðir nú niður yfir þann sem liggur á altarinu

og í þriðja sinn:
ÉG FYRIRGEF ÞÉR

endurtaktu þessa fyrirgefningar vinnu en biddu nú viðkomandi fyrirgefningar á öllu því sem þú hefur gert honum/henni

ÉG BIÐ ÞIG AÐ FYRIRGEFA MÉR ALLT SEM ÉG HEF GERT ÞÉR HVORT SEM ÞAÐ VAR VILJANDI EÐA ÓVILJANDI, RAUNVERULEGT EÐA ÍMYNDAÐ, Í ÞESSU LÍFI EÐA ÖÐRUM LÍFUM.

Þú sérð nú gullið ljós flæða niður úr hvelfingunni og umvefja þann eða það sem er á altarinu.

Þú segir aftur:

ÉG BIÐ ÞIG AÐ FYRIRGEFA MÉR
Enn meira ljós flæðir nú niður yfir þann sem liggur á altarinu

og í þriðja sinn:
FYRIRGEFÐU MÉR

Viðkomandi er nú lýsandi af gylltu ljósinu og þú sérð hann/hana lyftast upp í ljósið og sameinast því.
Þú finnur að þér líður vel og að þú ert frjáls

Þú þakkar almættinu fyrir leiðsögnina og gengur svo út úr musterinu, út í grænt grasið fyrir neðan. Sólin skín á þig og endurnærir þig...

Blíðlega finnur þú fyrir hjartanu þínu aftur, fyrir líkamanum hreyfir tær og fingur og opnar augun.

 

Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir Jógakennari



Efst á síðu

Pýramídahugleiðslan

Hugleiðsla við tré

Ýmislegt

Heim

 

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur