![]() |
||||||||||||||||||||||
Umsagnir um námskeiðið "Orka nýrra tíma"
Eftir að hafa verið á námskeiðinu Orka nýrra tíma, hjá Jónínu og Kristínu, fannst mér ég hafa fengið nokkur púsl í stóra púslið. Þetta var alveg frábært námskeið, mjög athyglisvert og fræðandi. Jónína og Kristín eru fullar af visku sem passa vel við þær hugmyndir sem ég var búin að gera mér um lífið og tilveruna. Ætla pottþétt að fara á fleiri námskeið hjá þeim. Kv. Sigríður Þórdís Sigurðardóttir
Ég var mjög ánægð með námskeiðið. Allt sem sagt er um Orku nýrra tíma er bæði fróðlegt og skemmtilegt. Hugleiðslurnar höfðu mjög góð áhrif á sálartetrið mitt. Já, og svo eru þær Jónína og Kristín yndislegar konur sem gefa frá sér jákvæða og góða orku. Kv. Erna
Ég var mjög ánægð með námskeiðið og leið mjög vel. Andrúmsloftið afslappað, mjög góð orka og mikill og góður fróðleikur. Stjórnendur báðar mjög góðar og svöruðu öllum okkar spurningum mjög vel. Kv Þórunn Gunnarsdóttir
Ég sé ekki eftir því að hafa farið á þetta námskeið það var mjög lærdómsríkt og áhugavert. Mér fannst tíminn bara of stuttur til þess að geta komist yfir allt þetta efni. Vona að ég komist á fleiri slík námskeið til þess að ræða betur um þessi efni. Kv. Sólveig
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||