![]() |
|||||||||||||||||||||||
|
Söngskálar
Söngskálarar framleiða hinn helga hljóm ómsins eða OM/ AUM. Til þess að hægt sé að spila á söngskálarnar þarf að halda á þeim í opnum flötum lófa annarrar handar þá geta þær víbrað frálst á meðan slegið er mjúklega í þær eða þær stroknar rólega með trékjullu meðfram ytri brúninni á skálinni með hinni hendinni. Þegar þetta er gert rétt þá framleiðir skálin stöðugt hreinhljóma hljóð sem hefur róandi og heilandi áhrif. Venjulega eru skálarnar notaðar fyrir hugleiðslu, jóga, heilun, tónheilun og til að koma jafnvægi á orkustöðvarnar og umhverfið. Mér finnst mjög notalegt að setjast niður og spila á söngskálina mína það róar hugann þannig að maður slakar vel á enda hefur hljómurinn heilandi áhrif og það kemur jafnvægi á umhverfið. Þetta er mjög líkt og að spila á hljóðfæri maður þarf að slaka á til þessa að hljómurinn verði sem bestur.
Sumar heimildir segja að skálarnar sé gerðar úr sjö heilögum málmum sem samsvari hinum sjö heilögu plánetum. Gull (sólinni), silfur (mánanum), kvikasilfur (merkúri), kopar (venusi), járn (mars) tin (júpiter) antimony (satúrnus). Antimony er silfurhvítur málmur sem er notaður til að herða málmblöndur.
Mildur ómur Tingshaw bjallanna hefur róandi áhrif á hugann og eykur og leysir upp staðnaða orku í því herbergi sem þær óma í. Þær eru einfaldlega slegnar lauslega saman til þess að fá hljóminn af þeim. Það er ágætt að nota Tingshaw eða bjöllur ef maður vill ganga um og klingja í hornum híbýla sinna.
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||