![]() |
||||||||||||||||||||||
Sjálfstyrkingarnámskeið - dragðu fram styrkleikana
Tveggja daga námskeið þar sem styrkleikar og veikleikar ólíkra persónugerða er kannaður. Þátttakendur fá stjörnukort sem þeir geta nýtt sér til þess að hjálpa til við að finna styrkleikana sína og skoða betur hvernig þeir geta fundið áður óþekkta eiginleika hjá sér. Farið verður í hugleiðslur til þess skoða hvernig hinum ýmsu persónuleikum líður hið innra. Hvernig líður listamanninum er hann að blómstra eða er hann lítill og óframfærinn, er kynveran í felum? Er framkvæmandinn að láta verða af hlutunum? Á námskeiðinu fær hver og einn að tjá/lýsa persónuleikunum sem þeir kynnast í hugleiðslunni með orðum, skriflega, með því að mála, eða með því tjáningarformi sem hentar best. Stríðsmaðurinn -sigrast hann á hindrunum sínum eða hefur hann látið bugast? Kynveran - er hún að njót sín eða er hún í felum? Skapandinn - leyfir hann sköpunarkraftinum að flæða fram og raungerast eða er hann hræddur við að sýna hvað í honum býr? Framkvæmandinn -verða hugmyndir hans að veruleika eða eru þær alltaf hugmyndir? Listamaðurinn - er hann frjáls og óheftur eða er hann lítill og óframfærinn? Rannsakandinn - kannar hann málin og metur stöðuna eða samþykkir hann allt sem hefur verið sett fram af öðrum? Hugmyndasmiðurinn - leyfir hann öðrum að njóta hugmynda sinna eða hefur hann þær einungis útaf fyrir sig? Frumkvöðullinn - Gerir hann hlutina sjálfur eða bíður hann eftir að aðrir geri hlutina fyrir sig? Gleðigjafinn - er gleðin raunveruleg, eða er þetta einungis gríman sem hann sýnir öðrum? Blómadropar -stjörnukort Verð námskeiðs er kr. 23.000 Námskeiðið verður haldið í Reykjavík.
Væntanleg námskeið á vorönn 2012 Aftur til upprunans
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||