Námskeið í boði á vorönn 2012
8 vikna sjálfsheilunarnámskeið með orkustöðvavinnu
Orkustöðvarnar eru hliðin að æðri skýrleika og vitund og geyma í sér minningar um allt það sem sérhver sál hefur gengið í gegnum í þessu lífi eða fyrri lífum hvort sem það eru áföll, gleði eða sorg. Þessar tilfinningar og upplifanir eiga stóran þátt í því hver við erum í dag en allt að 85% af okkar daglega lífi, persónuleika, hegðun og líðan stjórnast af þeim minningum sem sérhver sál hefur gengið í gegnum og sitja í orkuhjúpnum.
Á námskeiðinu verða kennd undirstöðuatriði orkustöðvavinnu og farið yfir hvernig hver og ein orkustöð tengist efnislíkamanum og með hvaða hætti hún hefur áhrif á heilsu okkar, tilfinningar, hugsun og líðan.
Í hverjum tíma verður unnið með eina orkustöð í gegnum leidda hugleiðslu og auk þess unnið með liti, blómadropa og kristalla. Hverjum tíma lýkur með hugleiðslu.
Orkustöðvarnar geyma lykilinn að skynjun okkar og næmni og hvernig við getum sjálf haft áhrif á daglegt líf og líðan.
Kennslan fer fram á mánudögum frá á frá kl. 19:00 – 22:00
Dags. Efni
05. mars Kynning, orkukerfi mannsins, áhrif fyrri lífa á núverandi líf. Jarðarstjarnan, jarðtengingin og Haralínan -tengingin við jörðina og vitund jarðar og að takast á við takmarkanir efnisins.
12. mars Rótarstöðin - undirstaða okkar í hinum mannlega efnisheimi.
Upplifum við afkomuótta, skort, kyndeyfð, öryggisleysi?
19. mars Tilfinninga/magastöðin -jafnvægi í hinu daglega lífi, ánægja og sköpunarkraftur eða doði, hungurtilfinning og tómleiki.
26. mars Sólarplexus -sjálfsöryggi, fullvissa og styrkur, kraftur til umbreytinga eða óöryggi og vanmáttarkennd í samfélagi mannanna.
02. apríl Efri- og neðri hjartastöð -að elska sjálfan sig og meðtaka eins og við elskum aðra. Að þiggja og gefa kærleika án væntinga.
16.apríl Hálsstöð -samskipti, tjáning og eigin sannleikur. Hvernig tjáum við okkar sannleika eða gerum við það ekki? Hver er hann?
23. apríl Ennisstöð - innsæi, viska, næmi og sköpun eiginveruleika og framtíðar, eða ótti og óöryggi um það sem verður.
30. apríl Krúnustöð -sjálfsþekking, tenging við hið Guðlega og andlega leiðbeinendur.
Sálarstjarnar -viska sálarinnar og vöknun minninganna.
Stellar Gateway -tengingin við upprunann, að vera eitt með öllu.
Lokatími
Verð námskeiðs er kr. 38.000
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru:
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir – Viskaoggledi.is
joninath@viskaoggledi.is s: 615 5710
Kristín Stefánsdóttir – heimurinyjuljosi.is
krst@simnet.is s: 699 7099
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík.
Umsagnir um námskeiðið "Orka nýrra tíma"
Væntanleg námskeið á vorönn 2012
Orka nýrra tíma
Aftur til upprunans
Ýmislegt
Heim
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |