Hvernig fer heilun fram
Heilun fer þannig fram að byrjað er á því að tengjast manneskjunni sem þiggur heilunina, það er t.d. gert með því að snerta hendur eða fætur og með því að hagræða einstaklingnum á bekknum laga kodda og teppi og því um líkt. Heilarinn byrjar síðan annað hvort að vinna á fótunum og færir sig upp eftir orkustöðvunum eða byrjar á höfðinu og færir sig niður eftir orkustöðvunum. Ef unnið er frá höfði þá er endað á rótarstöð eða fótum. Ef byrjað er á fótum þá er endað á höfuðstöðinni.
Fólk er misjafnlega næmt á orku
Það er engin hætta á að heilun geti á nokkurn hátt valdið skaða hversu veikur sem þiggjandinn er eða hversu mörg lyf hann tekur eða hvaða ástandi hann er í. Það er líka hægt að senda heilun á milli staða þó að manneskjan sé hinu megin á hnettinum þá er hægt að senda heilunarorkuna og hinn aðilinn finnur það eða finnur ekkert fyrir því. Við erum misjafnlega næm sumir finna vel fyrir orkunni þegar hún er að flæða um, en aðrir finna ekkert en það er ekki þar með sagt að orkan sé ekki til staðar því það er hún svo sannarlega. Oft er orkan skynjuð sem hiti eða kuldi, léttir stingir eða bara eins og einhver sé að strjúka létt á staðinn sem er verið að heila.
Heilun getur breytt líðan einstaklings
Það er ekki þannig að manneskja sem er mikið veik verði alheil á nokkrum mínútum eða einhver standi upp úr hjólastól sem er lamaður þó að hann fái heilun. Það er þó alltaf til bóta fyrir líðan einstaklings ef hann fær heilun þó ekkert annað gerist en að manneskjan slaki á og finni vellíðan einhverja stund. Það eitt að einhver veiti honum þá athygli og nærveru sem heilarinn gerir á meðan á heiluninni stendur getur breytt miklu. Það má líka alveg tala á meðan á heilun stendur þannig að sá sem fær heilunina getur fengið að tjá sig um sín hjartans mál ef hann er tilbúin til þess.
Það er hægt að gefa sjálfum sér heilunarorku
Það er hægt að gefa sjálfum sér heilun en þá leggur maður hendurnar yfir líkamann alveg eins og maður væri að vinna með aðra.
Dýrum líkar vel að fá heilunarorkuna
Það er líka hægt að heila dýr með orkunni, dýrin skynja orkuna mjög vel og sækja í hana. Ég missti einu sinni hest ofan í pytt en hann var orðin mjög dasaður þegar hann náðist upp hefði greinilega ekki átt langa lífdaga ef hann hefði þurft að dúsa mikið lengur ofan í því það stóð nánast ekkert orðið upp úr nema hausinn þegar ég fann hann. Ég fór með hann heim þó að hann væri hálf valtur á fótunum en við tókum þetta í áföngum og hann fékk að hvíla sig á milli. Þegar heim var komið þvoði ég honum með hálf volgu vatni og síðan fór ég að gefa honum orku inn á orkuhjúpinn. Ég fann að honum líkaði vel við orkuna og það sem ég var að gera. Ég var örugglega tvo eða þrjá tíma með hann í meðferð þennan dag og þrjá næstu daga. Þennan hest á ég enn þann dag í dag og er hann við hestaheilsu þó að hann sé farin að eldast. Það eina sem breyttist við hann var viðmótið. Hann varð einhvern vegin miklu meiri persónuleiki eftir þennan atburð ef það er hægt að tala um að hestar hafi persónuleika.
Heilunarorka á blómin
Það er líka hægt að gefa blómum heilun. Blóm og gróður almennt er fljótur að taka við sér ef honum er sýnd umhyggja og gefin tími fyrir heilun með höndunum eða huganum. Það er ekki að ástæðulausu sem blómin dafna best þar sem talað er við þau og hlúð vel að þeim. Með því að gera það er verið að gefa þeim heilun þó við köllum það ekki alltaf því nafni.
Heilun á ákveðna staði eða atburði
Ef það eru einhverjir ákveðnir staðir sem maður vill heila þá er bara að hugsa um þá, hafa mynd af þeim eða skrifa nafnið á blað og hugsa fallega til þess staðar. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það er hægt að heila staði sem við höfum orðið fyrir áfalli á, með þessu móti, þá er gott að hugsa um atburðinn um leið og heilunin fer fram. Þá er einnig gott að breyta einhverju á staðnum í leiðinni t.d. með því að hugsa sér annan lit á veggjunum setja blóm eða tré eða eitthvað fallegt sem lífgar upp á tilveruna og breytir minningunni af staðnum. Þannig getum við sjálf smátt og smátt breytt erfiðum aðstæðum sem hafa verið áhrifavaldar í lífi okkar jafnvel síðan við vorum börn.
Efst á síðu
Heim
|