Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aftur til upprunans - að tengja sig frumkröftunum

Helgina 2.-4. mars 2012

Námskeiðið verður haldið á Snæfellsnesi þar sem dvalið verður í þrjá daga og gist í tvær nætur.

Námskeiðið sem jafnframt er ferðalag til þess að tengast náttúruöflunum og þeim frumkröftum sem í þeim búa til þess að endurvekja samhljóm okkar við náttúruna og hjartslátt hennar.

Ferðin er einnig hugsuð sem hvíld frá tæknilegu nútímaáreiti sem við verðum fyrir af tölvum, sjónvarpi, útvarpi, síma og dagblöðum.

Námskeiðið sem hefst á hádegi föstudaginn 2. mars og endar síðdegis sunnudaginn
4. mars fer að einhverju leiti fram úti í náttúrunni og þurfa þátttakendur því að vera útbúnir fyrir veðurfarið eins og það getur verið í mars þar sem allra veðra er von.

 

Efni námskeiðsins

  • Að tengjast elementum jarðarinnar í gegnum veðráttu og krafta landsins

  • Að tengjast hjartslætti jarðarinnar

  • Kraftar ólíkra árstíða

  • Að tengjast náttúruverunum og læra að umgangast þær af virðingu og nærgætni

  • Að opna á innsæið og leiðsögnina

  • Að takast á við sjálfan sig í þögninni

  • Að tengjast æðra sjálfinu

  • Mismunandi vitundarstig

  • Að losa og tjá bældar tilfinningar með aðstoð náttúruaflanna

  • Að vekja ljóslíkamann

  • Ástin í sinni fegurstu mynd - hin guðlega kynorka

  • Umbreyting jarðarinnar

  • Orkulegar æfingar - öndunartækni - slökun - hugleiðsla

Verð námskeiðs er kr. 34.500, innfalið í verði er gisting í tvær nætur, morgunverður, léttur hádegisverður, eftirmiðdags hressing og kvöldverður.

Umsagnir um námskeiðið Orka nýrra tíma

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða:

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir joninath@viskaoggledi.is  s: 615 5710 
Kristín Stefánsdóttir  heimurinyjuljosi.is  krst@simnet.is  s: 699 7099
Margrét Sif Sigurðardóttir magga71@simnet.is

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 


© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur