Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Schwester eða Schwester

 

Signý Ósk og Símon Andri í Heiðmörk 2010

 

16. nóvember 2007

Simon (3 ára) og Signý litla systir hans (9 mánaða) voru í heimsókn ásamt mömmu sinni, hjá ömmu og afa í Þýskalandi. Þó að Símon sé bara þriggja ára þá tala hann bæði þýsku og íslensku.

Langamma Símons og Signýjar býr í sama húsi og amma og afi, það er bara annar inngangur.

Á morgnana fær langamma hjálp frá hjúkrunarfræðingi/ Krankenschwester til þess að þvo sér og klæða.

Þjóðverjar stytta gjarnan orðið Krankenschwester og tala oftast nær um Schwester/systir. Símon hafði heyrt mömmu sína og ömmu margsinnis kalla konuna sem kom og hjálpaði langömmu í fötin á morgnana, "Schwester/systir."

Einn morguninn skrapp hann yfir til langömmu sinnar í heimsókn. Hann kom hróðugur til baka og sagði: "stóra Signý er búin að koma og hjálpa langömmu í fötin."

 

 

 

Gleði

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur