![]() |
||||||||||||||||||||||||
Samúel eignast lítinn bróður
20. september 2007 Samúel er 5 ára síðan í maí en hann er elsta barnabarnið mitt, hann var að eignast bróður á fimmtudeginum í síðastliðinni viku. Litli maðurinn sem heitir Magni kom í heiminn á sjúkrahúsinu á Akranesi. Þegar Samúel kom með pabba sínum til þess að heimsækja mömmu og litla bróður þá horfir hann um stund á þann litla og segir svo með spurnar tón í röddinni, "eigum við þetta barn mamma?"
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||||