Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Þetta er lifandi

 

 

 

Þegar Signý var nýfædd þá fórum ég og Sara dótturdóttir mín sem þá var tveggja og hálfs árs til þess að skoða nýja barnið í fjölskyldunni. Símon bróðir Signýjar var að verða þriggja ára þegar þetta var. Hann kom með okkur að vöggu litlu systur til þess að sýna okkur hana. Ég gerði auðvitað eins og allar ömmur gera þegar þær skoða lítil börn, tók sængina af henni til þess að við gætum skoðað hana betur. Um leið og ég tek sængina ofan af þeirri litlu þá horfði Símon á mig alvarlegur í bragði um leið og hann segir, "þetta er lifandi."

 

 

Gleði

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur