Hver hjálpar mömmu
18. september 2007
Dóttir mín tók meiraprófið núna í haust, hún er komin með réttindi til þess að keyra vöruflutningabíla. Eftir að hafa fengið prófið fór hún í ferð á einum af trukkum bræðra sinna. Með henni í þessari ferð var öll fjölskyldan. Sara 3. ára og pabbi hennar sátu aftur í, en Kristján alveg að verða tveggja ára sat í framsætinu hjá mömmu sinni.
Allt í einu byrjar dóttir mín að hnerra ákaft og þegar hún nær að tala eftir hnerrakastið segir hún, "Guð hjálpi mér" þá gellur í Söru, "Kristján er fram í hjá þér mamma hann getur alveg hjálpað þér." |