Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Þakklæti

 

31. desember 2008

Það sem hefur verið mér efst í huga þessa síðustu daga ársins er þakklæti. Mér finnst ég finna fyrir þakklæti fyrir svo margt, það stóra og það smáa. Jafnvel það að eiga glas til þess að drekka úr, að eiga hreint og gott vatn til þess að drekka og að fá það beint úr krananum, það er eitt að því sem ég hef þakkað. Ég hef líka verið að þakka fyrir það að eiga yndislega fjölskyldu, yndislega vini og yndislegt fólk sem ég hitti eða hef samskipti við á einhvern hátt. Allt þetta fólk eru perlur mannlífsins, gimsteinar sem ég geymi í hjartanu.

Ég hef setið og horft út um gluggann þar sem ég hef verið þá stundina og hugsað hversu heppin ég er að eiga þak yfir höfuðið.  Ég er svo lánsöm að vera ein af þeim sem hef fengið yndislegt húsnæði að láni. Ég lít svo á að við fáum allar okkar veraldlegu eigur að láni vegna þess að ef við eigum eitthvað í bókstaflegri merkingu þá tökum við það með okkur þegar við förum yfir móðuna miklu. Það má þá segja að sú reynsla sem við öðlumst í jarðlífinu sé það eina sem við virkilega getum sagt að við tökum með okkur.

Það eru líka ótal atriði sem mörgum finnst vera sjálfsagður hlutur sem ég hef þakkað sérstaklega núna síðustu daga ársins. Þetta eru þættir sem snúa að líkamlegri getu svo sem að geta borðað sjálf, að geta andað sjálf, að geta gengið sjálf, að geta snúið mér í rúminu þegar ég vil, að geta náð mér í vatn að drekka þegar ég er þyrst, að geta borðað þegar ég er svöng, að geta valið hvað ég borða þegar ég elda matinn. Að geta sofið eins og engill með því að leggjast á koddann, að hafa frelsi til þess að fara að sofa þegar ég vil. Að geta farið út og notið náttúrunnar með því að sitja og horfa á hana, anda að mér lyktinni, hlusta á þögn hennar eða hljóðin sem verða vegna vindsins eða fuglanna, skynja fegurðina sem býr í henni og taka við ást hennar til mín. Að geta horft á himininn,  séð stjörnurnar eða skýin, litina í dansandi norðurljósunum, fundið kuldann í snjónum, eða mýktina í mosanum.

Ég er líka búin að vera þakklát fyrir það að eiga hluti svo sem tölvu og prentara, að geta lesið og skrifað allt sem mig langar til og það án þess að hafa svo mikið fyrir því. Að geta prentað út texta eða myndir út úr prentara til þess að geyma það til síðari tíma ef ég hef áhuga á að lesa það seinna. Þakklát fyrir að það skuli vera geymt á hvítum pappír sem auðvelt er að lesa af. 

Það eru ótal hlutir sem ég get þakkað. Ég hef aðgang að óteljandi upplýsingum, texta, myndum, táknum og hreyfimyndum. Þakklæti fyrir að ég kann að lesa og ég kann að skrifa og það á því tungumáli sem mér finnst svo fallegt. Ég þakka líka fyrir alla þá tækni sem ég hef til afnota til þess að hafa samskipti við fólk sem ég hefði ekki tækifæri til að kynnast nema í gegnum síma eða tölvuna.

Ég hef líka þakkað það tækifæri sem ég hef núna til þess að finna sjálfa mig eða þann frið sem býr hið innra, með því að vera á þeim stað sem ég er á hverju sinni, vera í því augnabliki sem ég er að upplifa akkúrat núna. Ég veit að ég þarf ekki að leggjast í ferðalag um hálfan heiminn til þess að finna þann frið ég get fundið hann hér og nú ef ég vil. Tengingin við Guð er allstaðar hvort sem ég er hér eða þar. Guð er  andardrátturinn sem ég get blessunarlega dregið að mér hverja einustu mínútu.

Ég óska ykkur öllum lesendum þessarar síðu yndislegra áramóta og megi nýja árið færa ykkur gleði, frið og kærleika. Hjartans þakkir fyrir öll samskipti og þá ástúð sem þið hafið sýnt mér á líðandi ári. Guð blessi ykkur.

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur