![]() |
||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Orkan í texta
30. desember 2007 Í mörg ár hef ég haft þann hæfileika að geta skynjað orku í skrifuðum texta. Ég fór að veita þessu meiri eftirtekt eftir að ég fór að lesa fréttabréfin hans Maitreya. Í raun og veru er ég mjög næm á alla orku hvort sem það er skrifaður texti eða annað í umhverfinu. Ég á auðvelt með að skynja hvernig fólki líður, líkamlega eða andlega, þá gildir einu hvort það er návist minni eða ég hugsa einungis til þeirra. Stundum hef ég hugsað út í það hversu margir hafa þróað með sér þá næmni að geta skynjað orkuna sem er í rituðum texta. Finnur fólk t.d. fyrir því hvaða orka kemur með fréttunum sem það les í fréttamiðlum á netinu eða dagblöðunum? Þetta er oftast nær eitt af því fyrsta sem fólk gerir hér á landi, það nær í dagblöðin og les þau, eða opnar tölvuna og les fréttir á netfréttamiðlunum. Finnur fólk fyrir því hvaða áhrif neikvæðar fréttir hafa á orkuna þeirra, hvernig sveiflutíðni orkunnar breytist við lesturinn? Erum við almennt að spá í það hvernig við mengum orkuna okkar við þennan lestur strax í morgunsárið. Orkan okkar er hreinust og tærust á morgnana það er sá tími sem við erum hvað mest í okkar eigin orku það er að segja áður en við blöndum orkunni með öðrum, eða einhverju öðru. Ég veit að margir sem hafa þann hæfileika að geta skynja orku í rituðum máli eru kannski ekki að velta því fyrir sér hvað það er sem fylgir með í pakkanum, hvað það er sem fylgir í því ritaða máli sem þau eru að lesa. Það er líka þannig að þeir sem lesa textann og finna ekki fyrir því hvaða áhrif orka textans eða myndanna með textanum hefur að þau eru líka að menga orkuna sína án þess að vera meðvituð um það. Þetta er eins og að hafa verið á göngu í hreinni náttúrunni og anda að sér fersku tæru lofti og koma síðan inn í kolaverksmiðju þar sem svartur reykur og sót mengar loftið sem þú andar að þér. Þannig er það sem orkan í neikvæðum, niðurrífandi texta virkar. Sumum finnst þetta eflaust ekki skipta neinu máli en ég held að með því að skynja og skilja bara þetta litla atriði, að það er orka í rituðu máli þá getum við líka séð hversu gríðarlega mikilvægt það er að vera meðvitaður um það hvað við setjum inn í orkuna okkar. Viljum við draga inn í orkuna okkar allt það neikvæða sem stendur skrifað í fréttamiðlunum eða viljum við leita upp eitthvað sem gefur okkur jákvæða orku og styrkir trú okkar á það góða og fallega í umhverfinu. Það er orka á bak við hvert einasta orð, hverja einustu setningu. Ég býst við að flestir sjá orðin á blaðinu eða á tölvuskjánum sem orð, skilaboð, upplýsingar eða tjáningu einhvers, ekki sem orku. Það er gaman fyrir fólk að prófa sig áfram til þess að vita hvort það getur fundið orkuna, ekki bara lesa það sem er skrifað, heldur finna orkuna. Ég hef séð það að flestir geta lesið út orku annarrar manneskju t.d. með því að halda smá stund á skartgrip sem hún á. Þetta er nánast það sama og orkulestur í texta en í raun og veru held ég að það hafi allir þennan hæfileika.
© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur |
||||||||||||||||||||||