Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Hver er Lord Lanto?

 

Lord Lanto er á öðrum geisla, gula geislanum, geisla kærleika, visku og sannleika.

Lanto hefur átt mörg líf í Lemuría og Atlantis og svo í Kína. Hann hefur verið þekktastur sem hertoginn af Chou og er talin vera sá sem stóð að baki speki Konfúsíusar. Með því að geisla græn gylltu ljósi í gegnum brjóst sitt í síðasta jarðlífinu sínu sannreyndi hann að það geta allir eflt sitt innra ljós. Hann varð meistari í kringum 550 fyrir Krist.

Hver sú sem leið okkar er, eða trú, þá getur Lanto leiðbeint okkur á leið okkar til uppljómunar, með því að kenna okkur að treysta okkar eigin guðlega eðli, að finna að við erum hluti af Guði og að við erum aldrei aðskilin frá honum.

Það er ekki mikilvægt hvernig við snúum aftur til Guðs heldur hvernig við gengum leiðina okkar. Lanto vinnur í gegnum höfuðstöðina, hann hjálpar okkur við að öðlast visku og þekkingu. Þekkingu sem gerir okkur kleift að víkka sjóndeildarhringinn og skilninginn. Með opnum huga sjáum við hlutina í nýju ljósi. Það er sagt að sannleikurinn komi með ljósið og að ljósið geri okkur frjáls.

Þegar Suzanna Axisa byrjaði að miðla Lord Lanto árið 2006, þá spurði hún hver tilgangur þeirrar miðlunar væri. Bréfið sem hér fer á eftir er svar Lantos.

Tilgangur minn er að kenna ykkur, að sýna ykkur hvernig þið eigið að elska ykkur sjálf. Af því að það hefur vantað á  jörðinni ykkar svo lengi, ég kem til ykkar í gegnum þennan miðil í þeim tilgangi. Þetta hefur verið mjög langt ferðalag fyrir hana, ferðalag sem byrjaði á því að kenna henni algjörlega hið andstæða.

Mörg ykkar sem lesa þessi orð hafa byrjað líf sitt á þeim stað, þar sem ást á ykkur sjálfum virtist algjörlega óhugsandi, en þetta er það sem varð að gerast ef þið eigið einhvern tíman að skilja hver þið eruð í raun og veru. Hvert og eitt ykkar er meistari sinnar eigin tilveru.

Þið kallið okkur meistara. Þið kallið mig meistara, eða Lord Lanto. Þið vitið kannski að við erum mörg í andlega heiminum, þið komið fram við okkur af svo mikilli lotningu, af svo mikilli virðingu og svo mikilli ást. Það er svo sorglegt að horfa upp á það vegna þess að þið eruð ekki að sýna ykkur sjálfum sömu ást og þið sýnið okkur. Ég er hér fyrir alla þá sem óska eftir að fá aðstoð við að skilja hvað það þýðir að elska sjálfan sig, að virða sjálfan sig, að þekkja hið guðlega og meistarann hið innra. Það er ekki fyrr en þið hafið lært þetta sem þið getið farið að hjálpa öðrum. Með því að gefa sjálfum ykkur allt sem þið þarfnist, gleðina, ástina, alsnægtirnar, fegurðina, hláturinn þá getið þið vonast til þess að geta hjálpað öðrum.

Eins og Budda sagði, ef þið viljið breyta öðrum, byrjið þá á sjáfum ykkur. Tilgangur minn á þessum tímapunkti er að hjálpa ykkur að breyta ykkur sjálfum. Hvað er það sem er innra með ykkur sem þarfnast ástar? Hvað er þarna innra með ykkur, horfið inn á við, hvað er það sem þarfnast frelsis, ástríða þín, gleði, eða yndislegi barnslegi hláturinn? Af því að þið eruð uppfull af allt of mikilli hluttekningu og áhyggjum sem loka á barnið í ykkur og heldur aftur af gleðinni og því guðlega, hinu mikilfenglega innra með ykkur.

Skilaboð okkar eru til allra sem eru tilbúnir að hlusta og hafa hugrekki til þess að framkvæma og treysta, er að minna ykkur á, hvað það er sem þarfnast athygli hið innra. Lærið að vera betri við ykkur sjálf svo að þið getið verið betri við aðra, við tímann, kærleikann, þekkinguna, friðsældina og samúðina. Heimurinn hefur mikla þörf fyrir göfuglyndar sálir.

Þú hefur ekki lesið þessa síðu af tilviljun. Þú hefur lesið hana vegna þess að á einhvern hátt þarft þú að láta minna þig á hvað það er sem þú þarft að veita athygli. Láttu orku þessara orða flæða í gegnum þig og svipta hulunni af þessum orku hindrunum, þessum ótta, notaðu orkuna, okkar orku, til þess að hjálpa þér að leysa hann úr læðingi.

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur