Heim
Viska
Heilun
Meistarar
Englar
Gleði
Hugleiðslur
Draumar
Um mig

 

 

Áramót

 

9. janúar 2012

Ég er svolítið sein með áramótapistilinn í þetta sinn en fyrir vikið hef ég haft meiri tíma til þess að líta yfir liðið ár og skoðað hvað það er sem stendur uppúr í mínum huga. Reyndar er það þannig að ég lít á að ármótskipti hvers einstaklings séu við fæðingardaginn enda er það reiknað þannig út í stjörnuspekinni. En þrátt fyrir það þá eigum við líka sameiginleg áramót, hópvitundar áramót og það er þegar eitt ár endar og annað tekur við.

Þegar ég lít yfir liðið ár þá verður það eins og oft áður hjá mér að ég fyllist af þakklæti fyrir það sem ég hef orðið aðnjótandi á árinu. Það er svo margt sem ég get þakkað fyrir sem mér hefur hlotnast á árinu. Nei, ég hef ekki unnið stóra vinninginn í lottóinu, ég hef ekki grennst um 30 kíló, eða fundið hinn fullkomna draumaprins. Ekkert af þessu hefur gerst, en ég er fullkomlega sátt við að hafa fengið annars konar lottóvinning, það er að líða vel með sjálfri mér og vera hamingjusöm hið innra.

Þegar ég náði að sleppa og fór að leyfa mér að finna hvernig hver dagur, hver mínúta getur fært mér vellíðan og gleði að það er allt undir því hvernig ég næ að stilla hugann þá fóru ótrúlegustu hlutir að gerast. Það kemur mér sífellt á óvart hvernig ég bregst við hinum ýmsu uppákomum, þar sem ég hefði brugðist við með öðrum hætti áður. Það má segja að líf mitt hafi tekið stakkskiptum í því tilliti að núna er ég miklu meðvitaðri um það hversu stór partur af því hvernig mér líður er tengt hugarfarinu.

Eins og ég sagði áður þá hefur árið sem var að líða verið mér einstaklega gjöfult. Ég hef hitt og kynnst svo mikið af yndislegu, hjartahlýju og skemmtilegu fólki að mér finnst eins og síðasta ár hafi verið eitt allsherjar gleði og hlátur ár. Ég hef hitt svo mikið að skemmtilegu fólki og einhvern vegin hefur sá hópur átt það sameiginlegt að geta hlegið að öllu mögulegu og ómögulegu. Það er yndislegt að geta hlegið og fundið samhug og ást sem fólk hefur til hvors annars þrátt fyrir að ytri aðstæður geti virst erfiðar. Við vitum að þegar ást og gleði fara saman þá er allt hægt.

Mér finnst gaman að hafa mikið af fólki í kringum mig og þannig hefur það vissulega verið síðastliðið ár. Ég hef líka getað dregið mig í hlé og fengið mitt næði til þess að vera ein með sjálfri mér, enda er það nauðsynlegt fyrir manneskju með tungl í krabba. Hún þarf sitt næði til þess að hlaða batteríin og finna hvað er hennar og hvað er annarra til þess að geta verið hún sjálf.

Þessa dagana vakna ég á morgana og finn hversu gott það er að vera til og geta gert allt sem mig langar til að gera, framtíðin er svo spennandi og það er svo margt að gerast sem mig hefur dreymt um í mörg ár.

Það er verið að vinna í nýjum heimasíðum sem munu líta dagsins ljós á næstu vikum. Þessar heimasíður sem verða bæði á íslensku og ensku kynna og styðja við það verkefni sem ég ásamt fleirum erum að stíga inn í á næstu mánuðum. Nýtt fyrirtæki leit dagsins ljós í lok síðasta árs og spennandi verkefni bíða, verkefni sem við höfum séð fyrir okkur lengi. Fyrirtækið sem var stofnað í lok síðasta árs hefur fengið nafnið Nýja Ljós eða New Light Journeys. Þetta eru spennandi tímar og tækifærin liggja víða.

 

Góðar stundir.

 

Efst á síðu

Ýmislegt

Heim

 

© Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir netpóstur